152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[16:28]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er bara eitt varðandi túlkun ógildingarreglunnar í lögum um alþingiskosningar sem eru í 3. mgr. 120. gr. sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann um, af því að ég náði ekki alveg að fanga það í ræðu hennar. Það var hvort hún teldi að það væri ekki nauðsynlegt að sýna fram á einhvers konar orsakasamhengi milli gallans og úrslita kosninganna til þess að ógilding geti komið til greina, hvort hún telji sem sagt að það þurfi ekki við túlkun á ákvæðinu sem er það ógildingarákvæði sem við þurfum að fylgja, það er eina ógildingarákvæðið sem löggjafinn hefur sett til að leiðbeina okkur um það hvernig við meðhöndlum mál af þessu tagi. Telur hún að það sé ekki þörf á því að sýna með einhverjum hætti fram á eitthvert samhengi, eitthvert orsakasamhengi milli gallans, sem vissulega er fyrir hendi, og milli úrslita kosninganna, sem líka liggja fyrir, til að hægt sé að beita ógildingarúrræðinu? Þetta segi ég vegna þess að ákvæðið er orðað þannig að ógilding sé heimil ef má ætla — ef má ætla, ekki bara ef hugsanlegt er eða ef kannski gæti komið til greina. Það er sagt „ætla má“ sem felur í sér ákveðna vísbendingu um að það þurfi að vera einhver líkindi fyrir því að þessi galli hafi haft þessi áhrif.