rannsókn kjörbréfa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Auðvitað er það þannig, held ég, hjá okkur flestum og ég vona öllum að við höfum lesið og rýnt gögnin, atvik máls, hvað liggur fyrir og hvað vantar upp á, einmitt út frá skilyrðum títtnefndrar greinar sem liggur fyrir hver er, og þetta orðalag ef ætla megi. Það er mitt mat að þegar þetta er tekið saman heildstætt, hver framkvæmdin var, hverjir ágallarnir voru, hvað breyttist milli fyrstu talna og seinni, þau víðtæku áhrif sem það hafði yfir landið allt, þá séum við búin að ná þeim þröskuldi að það megi ætla að þeir vankantar og þeir ágallar sem eru á framkvæmd tengist því sem þarna gerðist.
Ég vil hins vegar fá að ítreka það að ég hef lesið þessa greinargerð. Ég hef ekki hlustað á skýrslur þeirra sem komu fyrir nefndina. Ég stend ekki hér til að halda því fram að einhver hafi af óheilindum unnið með einhverjum þeim hætti að það sé ástæðan. Það er einfaldlega heildstætt mat á þessum þremur lykilpunktum sem leiðir til þess að mitt mat á skilyrðum laga og atvikum máls er þetta.