rannsókn kjörbréfa.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ástæðan fyrir því að ég spyr er að mér finnst að í ákvæðinu felist, ég segi ekki sönnunarregla en ákveðin leiðbeiningarregla um það hvernig beri að meta hlutina. Það er þannig, miðað við mitt mat á ákvæðinu, að það er verið að leggja það þannig fram að það þurfi heldur að færa rök fyrir líkindunum fyrir því að það sé samhengi milli gallans og úrslitanna heldur en að ákvæðið sé hlutlaust gagnvart því. Og alls ekki þannig að það sé gert ráð fyrir einhverri öfugri sönnunarbyrði.