152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[16:46]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Með leyfi þínu:

„… að ekki hafi komið fram vísbendingar sem gefa tilefni til að ætla að sá annmarki sem var á vörslu kjörgagna hafi haft áhrif á úrslit kosninganna í Norðvesturkjördæmi … “

Þannig hljómuðu orð formanns kjörbréfanefndar í ræðu hans fyrr í dag þegar hann fjallaði um niðurstöðu meiri hlutans. Gallarnir höfðu ekki áhrif á úrslit kosninga, sagði hann.

Forseti. Það sem veldur mér áhyggjum, það sem hræðir mig í raun við þessa niðurstöðu er að hvergi í niðurstöðum meiri hlutans er fjallað um áhrifin á lýðræðið. Það ætti að vera öllum ljóst að allt þetta ferli hefur grafið undan trausti og tiltrú fólks á lýðræðinu, á kosningum. Það er alvarlegt, forseti, og um það ættu þessi umræða og atkvæðagreiðsla að snúast að mínu mati. Hvernig endurheimtum við traust á lýðræðinu og kosningum? Sá flokkur sem mest talar um stöðugleika er einnig sá flokkur sem leggur til að setja stimpil sinn á lögbrot og fúsk í alþingiskosningunum sjálfum. Hvaða stöðugleiki felst í því að leggja til að það sé ekkert tiltökumál að leikreglur lýðræðisins séu hunsaðar? Við erum lítið samfélag og við eigum mikið undir því að traust ríki til opinberra stofnana, til stjórnvalda, til valdhafa. Það hefur sýnt sig nýlega í Covid hversu mikilvæg samstaðan er þegar við horfumst í augu við gríðarlegar áskoranir. En samstaðan er ekki sjálfsögð. Hún er byggð á grunni trausts sem er viðkvæmt og ber að nálgast af virðingu og varfærni, því að traustið er lím samfélagsins og forsenda þess að við getum áfram blómstrað sem samfélag.

Niðurstaða meiri hlutans í þessu máli kemur mér samt því miður ekki á óvart. Þessi vanvirðing, forseti — ég upplifi þetta sem vanvirðingu gagnvart lýðræðinu og fólkinu í landinu — virðist vera orðin regla frekar en undantekning, og hefur mögulega alltaf verið það. Þetta felur í sér gríðarlegt vanmat á alvarleika afleiðinganna. Hvað gerist þegar fólk hættir í auknum mæli að treysta því að kosningar skili réttri niðurstöðu? Hættir að treysta því að lýðræðið virki? Hvaða skilaboð erum við að senda ungu fólki, unga fólkinu okkar sem var að kjósa í fyrsta skipti í nýliðnum kosningum? Hvaða áhrif hefur það að grafa undan trú þeirra á að atkvæði þeirra skipti máli, að rödd þeirra skipti máli? Mun það hafa áhrif á kjörsókn í framtíðinni? Það á eftir að koma í ljós.

Forseti. Nú stendur til að þingmenn greiði atkvæði á eftir um eigin kjörbréf. Þessi staða sem þingmenn eru í, að bera ábyrgð á að staðfesta lögmæti eigin kjörs, er bara gríðarlega óeðlileg og í raun fáránleg. En hún er fyrirséð. Hún er afleiðing þess að við eigum úrelta stjórnarskrá sem hefur ekki verið uppfærð til að mæta kröfum nútímans. Auðvitað eiga þingmenn ekki að koma nálægt ákvörðun um eigið kjör. Það er augljós hagsmunaárekstur sem skýrir bara mjög vel niðurstöðu meiri hlutans í þessu máli. Ef hér hefði ný stjórnarskrá verið tekin í gildi værum við ekki í þessari stöðu. Í nýju stjórnarskránni er sjálfstæður úrskurðaraðili sem tekur afstöðu gagnvart kosningakærum, ekki þingmenn sjálfir, enda er núverandi fyrirkomulag fáránlegt. Það er úrelt og það er andlýðræðislegt að alþingismenn beiti þessu valdi sínu til að staðfesta ítrekuð lögbrot yfirkjörstjórnarinnar í Norðvesturkjördæmi. Það mun draga úr trausti á lýðræðinu og það mun draga úr trú almennings á því að atkvæði þeirra skipti máli. Þess vegna get ég ekki stutt neina þá niðurstöðu sem leggur blessun sína yfir þessa aðför að lýðræðinu. Ég vona að fleiri lendi á þeim stað í dag.