152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[17:03]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Bara örstutt í tilefni af ræðu hv. þingmanns þá fannst mér hún svolítið vera farin að snúa á hvolf hugleiðingum um sönnun eða sönnunarbyrði ef við tölum um það í þessu sambandi. Það er rétt, sem hv. þingmaður og fleiri hafa nefnt, að ekki er á neinn veg gerð krafa um lögfulla sönnun í eina eða aðra átt. Þegar sagt er að ætla megi að galli hafi haft áhrif á úrslit kosninganna er auðvitað ekki verið að krefjast handfastrar sönnunar fyrir því að gallinn hafi haft áhrif en líkindin verða að vera með því að þessi tiltekni galli hafi haft þessi tilteknu áhrif. Það er það sem felst í ákvæðinu en það felst ekki í ákvæðinu að það þurfi að afsanna að gallinn hafi haft þessu tilteknu áhrif. Ef við bara tökum hreina og klára lögskýringu miðað við orðalag ákvæðisins hljótum við að komast að þeirri niðurstöðu að líkindin verði að vera með því að þessi galli hafi haft áhrif. Annars er ákvæðið merkingarlaust. Þá er ég að tala um líkindi, ekki fulla sönnun fyrir því. Ég vildi bara árétta þessa skoðun sem ég veit ekki hvort hv. þingmaður er sammála, en mér finnst það liggja í augum uppi að þegar ákvæði er orðað með þessum hætti felur það í sér leiðbeiningu til þingsins um að líkindi verði að vera fyrir þeirri niðurstöðu að samhengi sé milli þessa tiltekna galla og þessarar tilteknu niðurstöðu. Það skilur eftir svigrúm til mats en þegar engar vísbendingar hafa komið fram um (Forseti hringir.) að þessi tiltekni galli hafi haft þessi tilteknu áhrif þá skortir lagaskilyrðin að mínu mati.