152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[18:04]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þm. Birgis Ármannssonar, í ljósi þeirrar afstöðu nefndarinnar að skoða og meta hvort ágallar hafi haft áhrif á niðurstöðu kosninganna, og í ljósi þess að hver ágalli er metinn fyrir sig, hvort tekin hafi verið afstaða til þess hvort ágallarnir hafi saman, í sameiningu, getað haft áhrif á niðurstöðu kosninganna.