rannsókn kjörbréfa.
Herra forseti. Svo teljum við ekki vera. Það er auðvitað þannig að það er mikið álitamál hvort heimilt er að líta þannig á að uppsafnaðir gallar geti leitt til einhverrar annarrar niðurstöðu en þegar þeir eru metnir hver fyrir sig. Það er mikið álitamál. Í frumvarpinu sem varð að lögum um alþingiskosningar var það orðað þannig að margir smávægilegir gallar gætu ekki orðið forsenda ógildingar. En það má segja að með því að meta hvern fyrir sig og horfa á þá og hugsa með sér: Getur þetta leitt til ógildingar eða ekki? þá höfum við reynt að nálgast þetta viðfangsefni. Til mikillar einföldunar má segja að eini gallinn sem við horfum á í þessu sambandi, sem raunverulega var þess eðlis að hann hefði getað leitt til ógildingar, var sá sem varðaði vörslu gagnanna og þess vegna beindist athygli okkar fyrst og fremst að því. Þannig að auðvitað felst í þessu visst heildstætt mat hjá okkur. En við segjum samt sem svo: Það verður að vera einhvers konar rökrænt samhengi, einhvers konar orsakasamhengi milli gallans og afleiðingarinnar til þess að það sé heimilt að fara í jafn viðurhlutamikla aðgerð og að ógilda kosningu.