152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[18:07]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er auðvitað hugsanlegt að nálgast málin með einhverjum þeim hætti sem hv. þingmaður nefnir og mér heyrist á ræðum hv. þingmanna hér í dag, þar á meðal nefndarmanna úr kjörbréfanefnd, að þeir meti þetta með mismunandi hætti að þessu leyti, þ.e. sumir nefndarmenn telja til fleiri en einn galla þegar þeir eru að komast að niðurstöðu sinni. Að mati okkar sem við getum kallað meiri hluta kjörbréfanefndar, sex nefndarmenn af níu, þá voru þessir gallar ekki með þeim hætti að við sæjum að það væri neitt rökrænt samhengi sem leiddi okkur að þeirri niðurstöðu að það bæri að fara í einhverja samlagningu að þessu leyti. Hv. þingmaður spyr: Er þá hægt að smætta alla galla niður í það að vera óverulegir? Nei, auðvitað verða menn að varast það og þess vegna í raun og veru tókumst við á við gallann sem varðaði vörslu kjörgagnanna sem alvarlegan galla sem þyrfti að skoða vel og kafa ofan í og reyna að afla þeirra upplýsinga sem hægt var í því efni til þess m.a. að sjá hvort hægt væri að finna einhverjar vísbendingar um það að gallinn, sem vissulega var fyrir hendi, hefði haft áhrif á úrslitin. Við töldum að svo væri ekki.