fullveldisdagurinn.
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að þennan síðasta hluta þingsetningarfundar, þessa langa þingsetningarfundar, ber upp á fullveldisdaginn. Þann dag árið 1918 tóku sambandslögin gildi og Ísland skipaði sér í sveit sjálfstæðra og fullvalda ríkja. Það er því við hæfi að hefðbundin þingstörf hefjist nú af krafti eftir langa bið. Þingmenn og þingmeirihlutar koma og fara en Alþingi stendur áfram sem kjölfesta lýðræðisins og það er á ábyrgð okkar allra.
Ég vil óska þingmönnum og landsmönnum öllum til hamingju með daginn.