152. löggjafarþing — 1. fundur,  1. des. 2021.

kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[13:07]
Horfa

Aldursforseti (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa og eru þeir einir í kjöri sem eru tilnefndir. Mér hefur borist ein tilnefning, um 9. þm. Reykv. s., Birgi Ármannsson. Eru aðrar tilnefningar?

Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Birgir Ármannsson er því einn í kjöri.

Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu. Ef ekki eru athugasemdir við þennan hátt á kosningunni fer atkvæðagreiðslan fram með þeim hætti. Kerfið er þannig stillt að jafna má við leynilega kosningu. Töflurnar á veggjum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði. Það sama gildir um geymsluminni tölvunnar sjálfrar. Þeir sem kjósa Birgi Ármannsson ýti á já-hnappinn, en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt óháð því hvernig það hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt, og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflum í þingsal.

 

[Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Birgir Ármannsson, 9. þm. Reykv. s., fékk 48 atkvæði, 11 þingmenn greiddu ekki atkvæði.]