152. löggjafarþing — 1. fundur, 1. des. 2021.
siðareglur þingmanna.
Forseti vill þá geta þess alþingismenn skulu undirrita yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér siðareglur fyrir alþingismenn, samþykktar með þingsályktun 16. mars 2016. Á borðum þingmanna liggur þingsályktunin um siðareglur og yfirlýsing til að staðfesta hana. Þegar hv. þingmenn hafa kynnt sér reglurnar eru þeir beðnir að afhenda undirritaða yfirlýsingu á þingfundaskrifstofu þess efnis að þeir hafi kynnt sér og undirritað siðareglurnar.