152. löggjafarþing — 2. fundur,  1. des. 2021.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:34]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Kæru landsmenn. Ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur hafið störf. Mikilvæg skref voru stigin í stórum málaflokkum á síðasta kjörtímabili. Má þar nefna aðgerðir í loftslagsmálum sem farnar eru að skila árangri, nýja stefnu í heilbrigðismálum, réttlátara skattkerfi sem skilað hefur þeim meira sem minna hafa á milli handanna, og svona mætti lengi telja. Ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur vill stíga stærri skref í átt að meiri jöfnuði og réttlátara samfélagi þar sem við getum öll lifað með reisn. Í viðleitni okkar til að skapa réttlátara samfélag eigum við að líta til þeirra sem lakast standa. Við eigum að efla skilning á fjölbreytni samfélagsins og tryggja réttindi allra hópa. Þannig verður samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks lögfestur og sett á fót sérstök mannréttindastofnun. Þannig verður Íslandi komið í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks. Þannig verður mótuð heildstæð stefna í málefnum útlendinga. Þannig verður sérstaklega litið til bættrar afkomu fátækustu hópanna á meðal eldri borgara og öryrkja því að fátækt á ekki að líðast í því velmegunarsamfélagi sem við lifum í og útrýma þarf því böli og þeim fjötrum sem fátæktinni fylgja.

Kæru landsmenn. Núna um áramótin verður 1% viðbótarhækkun á bætur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Það er fyrsta skrefið. En stóra verkefnið er að einfalda örorkulífeyriskerfið og gera það gagnsærra og réttlátara. Það þarf t.d. að auka möguleika fólks með skerta starfsgetu til endurhæfingar og atvinnuþátttöku og fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum. Á sama tíma er forgangsmál að tryggja kjör þeirra sem ekki geta tekið þátt á vinnumarkaði.

Virðulegur forseti. Eldra fólki á að standa til boða fjölbreyttari búseta og þjónusta og að geta búið lengur á eigin heimili. Einmanaleiki, einangrun og hreinlega fordómar gegn eldra fólki er sérstakt áhyggjuefni sem takast verður á við. Um næstu áramót verður frítekjumark atvinnutekna eldra fólks tvöfaldað, en einnig þarf að auka sveigjanleika í atvinnuþátttöku og gæta að rétti þeirra sem unnið hafa erfiðis- og álagsstörf á langri starfsævi, en hér er m.a. um stórar kvennastéttir að ræða.

Að eiga þak yfir höfuðið er eitt stærsta mannréttindamál samtímans og mikilvægur þáttur í að jafna kjör. Á kjörtímabilinu verður ráðist í sérstakt átak til uppbyggingar á leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk og eldri borgara innan almenna íbúðakerfisins. Þetta verða mikilvæg skref.

Virðulegi forseti. Réttlát umskipti vegna tækni- og loftslagsbreytinga, aðgangur að sí- og endurmenntun, bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga og bætt kjör þeirra sem lakast standa — allt eru þetta áskoranir sem bíða íslensks vinnumarkaðar. En þar er líka baráttan gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði sem ég mun gera að sérstakri áherslu minni á komandi þingvetri, enda eiga svik við vinnandi fólk ekki að líðast.

Kæru landsmenn. Gleðilegan fullveldisdag.