152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[10:38]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Nú þurfum við að leita ásjár hjá forseta og biðja forseta vinsamlegast um að fara fram á það við fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna hér á Alþingi að þeir sýni þessari merku stofnun snefil af virðingu í störfum sínum. Það er ekki í boði að hefja störf Alþingis með þeim hætti að virða reglur að vettugi. Það er engin heimild fyrir því að senda út beiðni um umsagnir jafnvel áður en mál er flutt í þingsal. Það er nefndin sem ákveður það í sameiningu. Í þessu tilviki hefur hv. fjárlaganefnd ekki verið kölluð saman og það er forkastanlegt að sá aðili sem stýrir þar hafi óskað eftir því, ef svo hefur verið, að umsagnarbeiðnir væru sendar út héðan úr húsi klukkan fjögur í gær.