152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[10:39]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég tek undir þessar áhyggjur og finnst þetta stórfurðulegt. Ég velti því fyrir mér: Var það fyrsta embættisverk nýs formanns fjárlaganefndar að kalla eftir umsögnum um mál sem ekki er búið að mæla fyrir, án þess að kalla nefndarmenn saman? Ég veit ekki betur en að það sé eðlilegt að nefndin sé kölluð saman og þar fari meira að segja fram umræða um hversu langur frestur eigi að vera til að skila umsögnum og öðru. Þetta þykir mér stórfurðulegt, og mér þykir þetta líka vera merki um — þetta er bara einn hluti af svo mörgum, þetta er eitt púsl af svo mörgum púslum sem sýnir ákveðna mynd sem mér finnst dálítið varhugaverð hvað það varðar að grafa undan þingræðinu. Er þetta einhvers konar blinda hjá stjórninni? Átta þau sig ekki á því hvernig þau koma fram? Hér er verið að grafa undan aðhaldsgetu stjórnarandstöðunnar. Verið er að grafa undan þingræðinu með svona skrefum. Mér finnst að forseti eigi að taka þetta fyrir og (Forseti hringir.) biðja formann fjárlaganefndar að koma sérstaklega hingað upp (Forseti hringir.) og gera grein fyrir þessari ákvörðun sinni. (Forseti hringir.) Hvar stendur í reglum þingsins að þetta megi?