um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara að biðjast afsökunar á þessum mistökum mínum sem formaður fjárlaganefndar og tek þau á mig. Mér var tjáð að þetta væri venja og hefði verið í áratugi varðandi umsagnarferli fjárlaganefndar og síðan hefði það verið tekið fyrir á fyrsta fundi hennar hvort bæta ætti við o.s.frv. En það er alveg rétt að þetta er ekki samkvæmt prótókollinum. En þetta hefur, eins og ég segi, verið gert mjög lengi og ég taldi mig bara vera að halda áfram því sem gert hefur verið. Ég játa að það eru mistök og það eru mín mistök og ég vona svo sannarlega að við náum saman um það í fjárlaganefnd að vinna vel saman þrátt fyrir að þetta byrji ekki vel af minni hálfu.