um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Við skulum hafa það alveg á hreinu hvers vegna stjórnarmeirihlutanum liggur svona á. Það eru aðeins örfáar vikur þangað til að það verður að vera búið að samþykkja fjárlög. Og það er ekki við minni hlutann á þingi að sakast að það er innan við mánuður þangað til fjárlögin verða bara að gjöra svo vel að vera klár. Það var ekki okkar vilji að kosningar yrðu að hausti og það var ekki okkar vilji að undirbúningsnefnd kjörbréfa og kjörbréfanefnd tækju sér allt of langan tíma til þess að gera ekki neitt, til þess að halda í status quo. Og núna, til þess að flýta fyrir sér, á að setja allan fjárhag ríkisins í hendur umsagnaraðila í eina viku að mér skilst til þess að flýta fyrir. Okkur finnst samt, þrátt fyrir stuttan tíma, að það þurfi að ræða fjárlög ríkisins. Þó það nú væri. Við skulum bara hafa það skýrt: Þetta er ástæðan fyrir því að farið var á svig við reglur þingsins. Það er út af því að ríkisstjórnin ákvað að kjósa að hausti og það er út af því að ríkisstjórnin þurfti skjól í níu vikur til að endurnýja heitin. Það skrifast ekki á okkur og það skal munað.