152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[11:13]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég hygg að mér sé óhætt að fullyrða að fáir þingmenn hafi komið hér upp og í einlægni beðist afsökunar á mistökum með jafn afgerandi hætti og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar. Það verður hver og einn að eiga það við sjálfan sig hvort tekið er mark á þeirri einlægni.

Ég var á síðasta kjörtímabili formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Þar var, að ég hygg óhætt að fullyrða, ágæt samstaða í vinnubrögðum en við deildum um efnisatriði. Við samþykktum þar slíka heimild til handa formanni en það var auðvitað alltaf gert með því fororði að nefndin myndi staðfesta það á fyrsta fundi, um leið og ákveðið var hver væri framsögumaður málsins, og hefði alltaf möguleika (Forseti hringir.) til þess að hafa áhrif á hverjir væru á umsagnarlistanum. (Forseti hringir.) Og öllum nefndarmönnum efnahags- og viðskiptanefndar var hvenær sem er heimilt (Forseti hringir.) og höfðu möguleika til að bæta við þann lista, jafnvel eftir að (Forseti hringir.) fundi var lokið.