152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[11:17]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem aðrir hafa sagt hér að það er sannarlega virðingarvert að fólk komi hingað upp og biðjist afsökunar og fyrir mitt leyti þá var ágætt að heyra að þetta væru mistök. Það sem er verra er að þessi mistök sýna hugarfar og sýna viðhorf sem við höfum séð annars staðar þó að við séum ekki komin lengra en þetta á þessu þingi. Það sýnir kannski helst hvað er að þessum viðhorfum þegar þingmenn þurfa að koma upp í pontu og útskýra til hvers reglurnar eru. Ef við skiljum tilgang reglnanna þá á ekki að þurfa að minna okkur á þær. Þær eru lógískar. Það er rökrétt að nefndin geri þetta saman, í sameiningu. Ef nú þarf að útskýra það fyrir meiri hlutanum hvers vegna nefndin þarf að hafa samráð um hluti eins og þetta þá tek ég undir með það sem kom fram hér áðan, að kannski þurfi að endurskoða hvers vegna við erum með nefndastarf yfir höfuð. Kannski þarf líka að rifja það upp fyrir meiri hlutanum.