um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil sömuleiðis þakka hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar fyrir afsökunarbeiðnina og lýsi því yfir að ég sé vitorðsmaður með henni og vil þá sömuleiðis biðjast afsökunar á hlut mínum í málinu. En ég vil bara segja hér í þessum ræðustól að auðvitað er þetta réttmæt gagnrýni. Auðvitað er það þannig að nefndin heldur ekki á málinu. Það er ekki komið til nefndarinnar og það er nefndarinnar að ákveða umsagnaraðila og umsagnarfrest. Það mun nefndin gera. Við þessar aðstæður var einfaldlega rætt á fundi með nefndarritara að vekja athygli á að fjárlagafrumvarpið væri komið fram. Það er mikið verk að gefa góða umsögn um fjárlagafrumvarpið. Gagnrýni stjórnarandstöðunnar hér er réttmæt, ég heyri hana og við virðum þau sjónarmið sem hafa komið fram. Þegar málið kemur til nefndarinnar mun nefndin að sjálfsögðu funda um það hvaða umsagnaraðilar senda inn umsögn eða óskað er eftir og hvaða tímafrestur verði gefinn.