152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[11:21]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Þessi umræða um fundarstjórn forseta hefur verið afskaplega áhugaverð og lærdómsrík. Við vitum öll í hvaða stöðu við erum. Það var ákveðið að kjósa að hausti. Það varð klúður í Norðvesturkjördæmi. Nefndin var lengi að vinna og við enduðum í þeirri stöðu hér sem við í minni hlutanum kölluðum ekki eftir en við erum í öll saman, 63, og þurfum að glíma við. Við verðum að afgreiða fjárlög fyrir áramót og þess vegna er svo mikilvægt að við förum eftir öllum reglum, formlegum, ef við ætlum að komast frá þessu máli fyrir áramót. Auðvitað eru allar stofnanir — það verður allt í uppnámi ef okkur tekst það ekki. Þess vegna verður meiri hlutinn að stoppa aðeins og hætta að telja hausa og gleðjast yfir því hvað hann er með marga (Forseti hringir.) umfram okkur í minni hlutanum, því að þetta mun ekki takast nema í samkomulagi milli allra þingmanna (Gripið fram í: Heyr, heyr.) meiri hluta og minni hluta. (Forseti hringir.) Þess vegna er mikilvægt að meiri hlutinn hætti (Forseti hringir.) að hugsa: Ég á þetta, ég má þetta. Það er ekki þannig. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)