152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

um fundarstjórn.

[11:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er virðingarvert af formanni fjárlaganefndar að játa á sig mistök og biðjast afsökunar á þeim og við þökkum fyrir það. En það er áhyggjuefni hvernig fulltrúar meiri hlutans í þessari umræðu hafa sumir tjáð sig. Að finnast það ankannalegt að við ræðum á lýðræðislegum vettvangi innan nefnda þingsins hvernig mál eru send til umsagnar og til hvaða aðila, ég er alls ekki sammála því. Það er hornsteinn nefndastarfsins að við vinnum saman í salnum, að allir níu nefndarmenn séu saman við borðið í öllum grundvallarumræðum nefndarinnar. Þess vegna er enn meira áhyggjuefni þegar við fréttum núna að hv. þm. Haraldur Benediktsson hafi verið með formanni fjárlaganefndar í að ákveða að senda fjárlagafrumvarpið til umsagnar. Þannig að hægt var að kalla saman formann og varaformann nefndarinnar, — væntanlega ekki 2. varaformann nefndarinnar af því að hv. þm. Inga Sæland tilheyrir stjórnarandstöðu —(Forseti hringir.) það var hægt að kalla þau saman til að taka sameiginlega þessa fúskákvörðun stjórnarmeirihlutans. (Forseti hringir.) Og ef þetta er andi vinnubragðanna í nefndum þingsins þurfum við að vara okkur verulega. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)