152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að mér finnst hv. þingmaður hafa gert vel í því að halda ítrekað ræður hér á Alþingi um mikilvægi gagnsæis í þessum málaflokkum og ég held að hann hafi rétt fyrir sér um það að eins mikið gagnsæi og við getum tryggt er mikilvægt. Við höfum mjög metnaðarfull markmið heilt yfir í lögum um opinber fjármál en á einhverjum tímapunkti held ég að við þurfum að spyrja praktískra spurninga um það hversu langt við getum í reynd gengið til að tryggja fullt gagnsæi um hvert einasta atriði.

Varðandi þetta sérstaklega sem nefnt er, peningaþvætti og að fjárfesta í betri kerfum til að greina t.d. skattsvik og slíka hluti, þá er ég algerlega sannfærður um að það er eitt besta dæmið sem við höfum í öllu stjórnkerfinu um það að við myndum gera rétt með því að fjárfesta þar til þess að geta greint gögnin, fundið frávikin, rannsakað þau í stað þess að láta það ógert að rannsaka gögnin (Forseti hringir.) og vera bara með útprentaða stafla af skattframtölum (Forseti hringir.) og reyna að finna eitthvað sem vert væri að verja tíma í.