152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:34]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Nú ræðum við stærsta frumvarp hverrar ríkisstjórnar ár hvert. Hér ræðum við um það hvernig við ætlum að útdeila gæðunum, hvernig við ætlum að halda samfélaginu okkar gangandi, helst af sanngirni. Tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar 955,5 milljarðar kr. á árinu en útgjöldin hins vegar 1.224 milljarðar kr., hallinn 168,5 milljarðar kr. Það kann kannski að líta illa út að vera með slíkan halla á fjárlögum en staðreyndin er sú að hann er jú betri, hann er til lánsins minni en við leyfðum okkur raunverulega að vona eftir að við fengum þennan heimsfaraldur í fangið með öllu því sem honum tilheyrir. Kæra þjóðin okkar sá til þess að hlutirnir urðu ekki eins slæmir þrátt fyrir að ferðaþjónustan missti fótanna og sé ekki enn búin að rétta úr kútnum eins og við vonum að hún geri. Það vorum við, sjálfir Íslendingar, sem sáum um það að efnahagshjólin héldu áfram að snúast. Við ferðuðumst ekki erlendis en ferðuðumst meira innan lands. Við gerðum vel við okkur í mat og drykk og í stað þess að eyða hátt í 300 milljörðum eins og við erum vön að gera árlega á erlendri grund þá fór til lánsins stór hluti af þessu fjármagni til okkar hér heima í formi einkaneyslu.

Það var líka ýmislegt ágætt gert sem var ákveðinn hvati fyrir mörg fyrirtæki og við skulum nefna átak ríkisstjórnarinnar Allir vinna. Það var mjög gott framlag og það ber að þakka. Við vorum dugleg að gera við og jafnvel núna undir lokin var þetta framtak stjórnvalda eflt enn frekar þannig að Allir vinna var jafnvel líka komið í það að við gátum látið dytta að gömlu bíldruslunni og hvaðeina annað og fengið virðisaukann endurgreiddan. Þannig að það hefur nú ekki allt verið slæmt og ber að þakka það góða sem hefur verið gert og við stöndum í rauninni betur að vígi í þessum heimsfaraldri en margar aðrar þjóðir geta sagt.

Hagstofan spáir engu að síður um 5,3% hagvexti á árinu 2022 og það er alveg frábært, ég verð bara að segja það. En í raun er verið að gera ráð fyrir komu 1,4 milljóna ferðamanna á næsta ári, tvöfalt fleiri en á þessu ári. Það er náttúrlega ekki víst að svo verði. Við erum alltaf að taka við nýjum og nýjum áskorunum og nú er nýjasta afbrigði af kórónuveirunni búið að taka landfestu hér þannig að við sjáum svo sem ekkert alveg fram á morgundaginn. En við sjáum alla vega að gert er ráð fyrir því að við höldum áfram að standa saman og vinna bug á því risaverkefni sem kórónuveiruheimsfaraldurinn er.

Það er ýmislegt sem á að gera eins og ég sé í fjárlögunum og annað slíkt. Og eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur líka sagt, hann ætlar að klára núna á næstu tveimur árum að selja eina af gullgæsunum okkar sem er Íslandsbanki. Það er skammgóður vermir, finnst mér, á þessum tímapunkti þar sem bankarnir eru að mala slíkt gull að annað eins hefur varla sést. Þeir eru búnir að hala inn yfir 900 milljörðum kr. í arð núna frá hruni, hvorki meira né minna. Ég veit það og það hefur náttúrlega komið fram að við fáum ekki arðgreiðslurnar frá Íslandsbanka þegar við erum búin að selja gullgæsina. Ég vildi frekar að við héldum áfram að fá arð pínulítið lengur. Það er svo sem engin ástæða til þess að við eigum alla banka. Það er ekki ástæða til þess að við eigum tvo en það væri virkilega fallegt að sjá hvernig ætti þá að fara með þann sem við raunverulega eigum og viljum halda eftir, sem er Landsbankinn. Ég hefði viljað sjá hvernig við ætluðum að koma almennilegu samkeppnisumhverfi inn á þennan einokunarbankamarkað með því t.d. að boða það að við munum vera þar með samfélagsbanka sem raunverulega væri fyrir fólkið í landinu, raunverulega. Það er ekkert langt síðan við seldum af hlut okkar í Íslandsbanka þar sem verðið rauk upp og var náttúrlega alveg ljóst frá byrjun að við vorum að selja á undirverði. En það er sama, svoleiðis er það nú.

Ég sé líka í þessum fjárlögum að enn er aðhaldskrafa á sjúkrahúsþjónustu upp á 477 millj. kr., það er eiginlega algjörlega með furðu. Það er verið að tala um að leggja eigi aukið fjármagn í sjúkrahúsin. Væri ekki bara rétt að byrja á því að koma þeim á núll, bara koma þeim út úr skuldunum? Það góða sem ég sé hins vegar í sambandi við sjúkrahúsin er að það er mjög jákvætt að loks eigi að koma almennilegri stjórn yfir spítalann. Þetta hefur verið nánast höfuðlaus her og það er ekki hægt að kenna því eingöngu um að fjármuni hafi vantað til sjúkrahússins því að það hefur verið vilji til að veita fé þangað, í raun hefur skipulagsvandi og á margan hátt ákveðinn stjórnunarvandi frekar einkennt starfsemina þar.

En hvað gætum við sparað mikla peninga á því að útskrifa eldra fólkið okkar sem liggur í löngum röðum inni á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og bíður eftir viðunandi búsetuúrræði? Mér skilst að það eigi að losa um a.m.k. 30 núna fljótlega. Eftir verða þá kannski um 80 þannig að betur má ef duga skal. Það er ekki nóg að segjast vera að reisa hjúkrunarheimili úti um allt, það verður að tryggja rekstur þeirra, það verður að tryggja starfsfólk fyrir þau og til þess að laða til okkar starfsfólk, fagfólk, hvort sem það er inn á sjúkrahúsin sjálf eða í kringum umönnun við það fólk sem þarf á þeirri umönnun að halda, þá verðum við að greiða fólki viðunandi laun. Það segir sig sjálft. Það er kannski rétt að benda á að frá árinu 2017 hefur opinberum starfsmönnum fjölgað um 9.000, hvorki meira né minna, og með launum og launatengdum gjöldum er reiknað með að í kringum hvern og einn af þessum 9.000, svona að meðaltali, sé það um milljón á mánuði. Hvað skyldi nú vera 12 milljónir, ef við miðum bara við þá tölu, sinnum 9.000? Þetta er á ári, hverju einasta ári. Þetta eru sennilega á bilinu 10–11 milljarðar kr. Það er lítið að finna í þessu fjárlagafrumvarpi um varanlegar lausnir á rekstrarvanda spítalans.

Við skulum líta á liðinn í fjárlagafrumvarpinu sem er undir endurhæfingu. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 70 milljarða kr. og má segja að það sé vegna tímabundinna framlaga sem höfðu farið til SÁÁ og Samhjálpar. SÁÁ fær því engan viðbótarstuðning núna til að bæta upp það rekstrartap sem verður hjá samtökunum við það að hafa hætt að þiggja peninga úr spilakössum, hætt að þiggja frá spilafíklum sorgina sem þeir skilja eftir eftir sig í spilakössunum. Mér þótti það virkilega vel gert hjá SÁÁ og sannfærandi að sýna að þeir eru ekki tilbúnir til að taka á sama tíma fjármuni frá fíklunum með annarri hendinni á meðan verið er með hinni hendinni að reyna að hjálpa þeim að komast í gegnum fíknina. Mér fyndist vera bragur á því, svo ekki sé meira sagt, ef stjórnvöld héldu áfram að bæta samtökunum þann fjármissi sem þau verða fyrir um leið og þau hætta að þiggja þessa peninga úr spilakössunum.

Annað sem mig langar að benda á í sambandi við Sjúkrahúsið Vog og starfsemi SÁÁ er að það eru 2.200 sjúklingar sem fara í gegnum Sjúkrahúsið Vog á hverju ári. Það eru 22.000–25.000 einstaklingar sem nýta sér þjónustu SÁÁ á hverju einasta ári í formi göngudeilda, sálfræðihjálpar og umönnunar og utanumhalds vegna fíknisjúkdóma. Það er sárara en tárum taki að við skulum horfa upp á það að fjárlögin gera ráð fyrir 1,1 milljarði kr. ríflega til þess að styrkja þessa heilbrigðisþjónustu. En það er ekkert nema sjálfsagt að setja 13 milljarða kr. í loftslagsvanda. Það er algerlega frábært. Það á að auka það um milljarð á ári til ársins 2032. Þá erum við farin að leggja 22 milljarða kr. í loftslagsvána.

Ég furða mig á því þegar maður horfir upp á ástandið úti í heimi þar sem fólk nánast gengur um í geimbúningum til að geta labbað húsa á milli í bæjunum sínum vegna raunverulegrar mengunar og ég velti fyrir mér: Hvernig ætli raunveruleg mengun líti út? Hvernig er raunverulegt hættuástand mengunar ef það er það sem er mælikvarðinn hér á Íslandi? Er það svo að við viljum frekar svelta bræður okkar og systur bara til að geta sýnt fallega ásýnd út á við í alþjóðasamfélaginu, til að segja: Vá, sjáið þið hvernig við Íslendingar tröðkuðum á þeim sem minna máttu sín af því við ætlum frekar að nota peningana í loftslagsvána sem við erum ekki enn þá farin að þurfa að horfast í augu við. Eigum við að bíða eftir að horfast í augu við hana? Við þurfum þess ekki. Við þurfum hins vegar að einbeita okkur að því að reyna að láta þær þjóðir sjá ljósið sem raunverulega láta sér á sama standa um hvernig þær eru að fara með jörðina okkar. En að ætla að forgangsraða fjármunum svona, sem bitnar raunverulega á fólki sem þarf á þessum fjármunum að halda, er vægast sagt síðasta sort.

Það er líka síðasta sort að lækka bankaskatt um ríflega 7 milljarða kr. á síðasta ári, á banka sem eru að springa af peningum, og þeir eiga nóg af peningum til að leggja inn í okkar sameiginlegu sjóði, nóg af peningum. Það er líka ömurlegt á að horfa að við skulum ekki fá fleiri krónur úr auðlindinni okkar, sjávarauðlindinni okkar. Nei, vitið þið það, þetta er afkomutengt. Þess vegna lækka ekki auðlindagjöld, þetta er bara bull, segja þeir. Það er bara bull að það sé eitthvað minna að fá núna 5 komma eitthvað milljarða eða 4,7 milljarða út úr okkar sameiginlegu auðlind á ári versus ríflega 11 milljarða árið áður, á milli ára. Nei, þetta er ekki lækkun á veiðigjöldum, það er bara alrangt, vegna þess að EBITDA er bara svona. Svona er bara raunveruleg staða. Á sama tíma eru þessi fyrirtæki að greiða sér út milljarða á milljarða ofan í arðgreiðslur af okkar sameiginlegu auðlind, sjávarauðlindinni. Ég er búin að fá nóg af þessari hagsmunagæslu í kringum risavaxin milljarðafyrirtæki sem eru búin að sölsa undir sig landið og miðin og eiga nánast orðið í hverju einasta fyrirtæki á landinu. Það er algerlega með ólíkindum að þetta skuli ekki koma hér uppi á borð, algerlega með ólíkindum.

Ég segi: Ef við höfum efni á þessum 13 milljörðum í loftslagsvána, sem við erum ekki enn þá farin að glíma við hér heima, bara til að sýna hvað við erum dugleg og hvað við ætlum að hjálpa jörðinni okkar, þá skulum við setja helmingi meira í fátæka fólkið sem stendur í röðum til að biðja um mat núna fyrir jólin. Það er svo rosalega gaman, allt er vænt sem vel er grænt, að koma hér fram og segja: Jú, víst ætlum við að setja meiri peninga í loftslagsmálin. En fyrirgefðu fátæki maður, fátæki faðir, fátæka móðir og barn, við eigum ekki peninga handa þér.

Nú fyrir jólin er SÁÁ að fara af stað með jólaálfasöluna sína. Ég hvet ykkur öll til að kaupa álfinn. Ég held að það sé engin fjölskylda á landinu sem ekki á aðstandanda eða einhvern náinn sér sem er að glíma við alkóhólisma og andstyggðarfíknisjúkdóma. Við vitum hvers virði það er að fá hjálpina og það er þarna sem hana er að finna. Mestu sérfræðinga á sviði sjúkdómsins er að finna hjá SÁÁ. Það er sárara en tárum taki að sjá það, þegar við vitum að tæplega 700 manns bíða við þröskuldinn inn á Sjúkrahúsið Vog til að biðja um hjálp, að ekki skuli vera hægt að opna faðminn og hleypa þeim þangað inn. Það er algerlega fáránlegt að þessi þjónusta og þessi sjúkdómur skuli ekki vera viðurkenndur í heilbrigðiskerfinu og tekið utan um hann þar eins og hvern annan sjúkdóm. En ég vona að í framtíðinni fari að draga dálítið úr þeim fordómum sem hafa einkennt nánast alla umgjörðina í kringum þá sem eiga bágt og glíma við þennan sjúkdóm og í kringum þá sem eru að berjast við kerfið til að fá fleiri krónur til að geta hjálpað fólkinu sínu. Um 15 manns að meðaltali deyja á hverju einasta ári í þessari bið eftir hjálp á Sjúkrahúsinu Vog. Er það viðunandi, virðulegi forseti? Nei, það er síðasta sort og engin stjórnvöld ættu nokkurn tíma að þurfa að horfast í augu við það að þau hefðu getað komið í veg fyrir slíkt, bara með því að viðurkenna vandann og bregðast við honum, ekki á morgun heldur núna.

Tölum um örorku og málefni fatlaðs fólks. Það er ekkert í fjárlagafrumvarpinu fyrir öryrkja, ekki neitt, nema 4,6% reglulega vísitölutengda uppbótin sem er 1. janúar á ári hverju og á að koma til framkvæmda núna í janúar. Jú, svo er talað um, vegna verðbólgu og annars, að bæta eigi við 1%, alveg heilu prósenti, til ykkar, öryrkjaræflarnir ykkar, sem eruð með 250.000–260.000 kr. á mánuði. Ef þið eruð ekki með lífeyrissjóð eða neitt og eruð að hokra sjálf þá fáið þið alveg heilt prósent í viðbót. Vá, þvílík rausn. Þetta er talið mikið framfaraskref, alveg eins og þeir 22 eða 23 milljarðar sem voru settir í lægsta tekjuskattsþrepið sem ríkisstjórnin og talsmenn hennar fá aldrei nóg af að dásama. En á sama tíma er ég á ofurlaunum að fá að þiggja af þessum 22 milljörðum í þriðja lægsta skattþrepinu. Ég fæ líka að njóta þess þrátt fyrir að hafa akkúrat ekkert með það að gera frekar en persónuafsláttinn sem ætti miklu frekar, eins og Flokkur fólksins hefur ítrekað kallað eftir, að færa niður til þeirra sem virkilega þurfa á honum að halda. Hvað hefur milljónamaðurinn að gera með 56.000 kr. á mánuði í persónuafslátt? En hvað gæti það gert fyrir fjölskylduna sem uppfyllir ekki einu sinni lágmarksframfærsluviðmið velferðarráðuneytis? Hvað myndu þessar 56.000 kr. gera fyrir þessa fjölskyldu? Þær gætu skipt sköpum fyrir hana, algerlega skipt sköpum. Hvað gera þær fyrir milljónamanninn? Hann getur keypt sér einni koníaksflöskunni meira og látið hana kosta 50.000 kall í þetta skipti í stað þess að kaupa fyrir 12.000 kr. ef hann hefði ekki fengið persónuafsláttinn.

Það er með hreinum ólíkindum hvernig fjármunum er forgangsraðað. Þetta fjárlagafrumvarp byggir á fjármálaáætlun, sem er náttúrlega góð endurnýting, þetta er eins og með orkuna, endurnýjanlega orku, endurnýtum dósirnar og förum með þetta í dósasöluna og endurnýjum allt. Það á samt sem áður ekki að endurnýja fjárlagafrumvarpið. Það á að koma eitthvað alvöru inn í fjárlagafrumvarp eftir heilt kjörtímabil þar sem fátækt fólk hefur verið látið bíða eftir réttlætinu. Það á að hætta að láta það fólk bíða eftir því réttlæti. Það er algerlega óskiljanlegt með öllu hvers vegna ekki er tekið utan um öryrkja líka og frítekjumark þeirra hækkað til þess að gefa þeim tækifæri til að leita út á vinnumarkaðinn. 109.000 kr. frítekjumark launatekna öryrkjans er búið að vera fast, blýfast, í tólf ár, hvorki meira né minna. Hefur það fylgt vísitölu? Nei. Vísitölu neysluverðs? Nei. Einhverri vísitölu? Nei, engu. Við skulum bara hafa það þarna, þið skulið halda áfram að éta það sem úti frýs, því væntanlega, ef þið eruð öryrkjar, þá hafið þið kannski bara ekkert út á vinnumarkaðinn að gera. Eða hvað, eru það skilaboðin? Þannig hafa skilaboðin verið til okkar öryrkja, nákvæmlega þannig.

En nú á að gera eitthvað fyrir öryrkjana. Samt sem áður á ekki að draga þá út og reyna að efla þá þó að það komi fram í stjórnarsáttmálanum. Þess sér engan stað hér. En það á aftur á móti að tvöfalda, sem er rosalega frábært, viðmið skerðinga á launatekjur vegna launa aldraðra. Frábært, enda eru það örfáir einstaklingar sem geta nýtt það og hér er talað um að þessi aðgerð muni kosta ríkissjóð yfir 500 millj. kr. Er tekið tillit til þess hvað mun skila sér aftur í ríkissjóð í formi óbeinna skatta, virðisauka og að það verður meiri neysla, verður meiri möguleiki á því að eyða fleiri krónum? Hvað gerir ríkissjóður ef þú opnar veskið og kaupir þér eitthvað? Hann hirðir stærðarinnar hlut af því. Hvað gerir ríkissjóður ef þú ætlar að kaupa þér bensín? Hann hirðir a.m.k. 70% af verðinu. Þannig að í raun og veru er allt að vinna og engu að tapa.

Flokkur fólksins er búinn að mæla ítrekað fyrir frumvörpum um að afnema skerðingar á launatekjur aldraðra með öllu. Við höfum lagt fram skýrslur hér sem draga það bersýnilega fram að meiri líkur en minni eru á því að þetta yrði hagur fyrir alla: Lýðheilsa og aukin velsæld og vellíðan fullorðna fólksins okkar sem hrökklast inn vegna þess að það tekur því ekki að fara út að vinna. Það kostar að koma sér í vinnuna. Fólk getur kannski ekki unnið 100% vinnu en langar samt að taka þátt. Félagslega, andlega og alla vega er betra að virkja okkur og efla mannauðinn þannig að við getum tekið þátt. Það er nákvæmlega það sem Framsóknarflokkurinn vann sinn stóra kosningasigur út á. Þeir ætla nefnilega að efla og fjárfesta í mannauðnum. Hver þekkir ekki þennan frasa: Við ætlum að fjárfesta í mannauðnum? Það verður bara að virkja mannauðinn. Hvernig á að virkja hann? Svíþjóð prófaði að bjóða öryrkjum að fara út á vinnumarkaðinn án skerðinga. Þeir voru að reyna að ná fram þeim sem eru líkamlega hraustir en ættu erfitt andlega, með því að taka þátt og koma sér út úr dimmunni og vesöldinni og vanlíðaninni sem fylgdi því að vera öryrki, einn heima, félagslega einangraður. Og hverjar urðu niðurstöðurnar? Við erum búin að tala um þetta hér í fjögur ár, Flokkur fólksins. Við erum með gögn, við erum með skýrslur sem sýna staðreyndir. 32% af þeim Svíum sem fóru út á vinnumarkaðinn og fengu þennan aðlögunartíma skiluðu sér ekki aftur inn í örorkukerfið. Það verður að átta sig á því að það er líka mannauður í öryrkjum. Þó að samfélagið líti oft á tíðum og stjórnvöld nánast alltaf á okkur öryrkja eins og tíunda flokks þjóðfélagsþegna þá er mannauður í öryrkjum. Það á að virkja hann, það á virða hann, það á að hjálpa öryrkjum að bjarga sér sjálfir. Þeir vilja ekki vera þiggjendur ef þeir þurfa þess ekki. Þeir vilja ekki vera á framfærslu Tryggingastofnunar ef þeir þurfa þess ekki. Þeir vilja ekki sjá það.

Ég hefði haft meiri væntingar til sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð er að leiða þessa ríkisstjórn annað kjörtímabilið í röð og forsætisráðherra sem sagði í þessum ræðustóli í september 2017: Það að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu er það sama og að neita því um réttlæti. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, virðulegur forseti, að þessir þjóðfélagshópar eigi að bíða enn eitt kjörtímabil eftir réttlætinu.

Við skulum tala um þá ofrausn sem er í því að það eigi að leggja aukaprósent ofan á hækkun vísitölunnar sem á að leiðrétta kjör almannatryggingaþega núna í janúar. Við erum að glíma við verðbólgu. Hver er raunverulegur ábati? Þetta er svona aumingjagreiði. Ég kalla þetta aumingjagreiða, að sýnast vera góður, að bæta heilu prósenti ofan á ykkur þarna, almannatryggingavesalingarnir ykkar, einu prósenti ofan á bæturnar. En við vitum jú að það er blússandi verðbólga. Við vitum að það er allt rokið upp úr öllu valdi. Við vitum að húsaleigan er farin algjörlega úr böndunum og það getur nánast ekki nokkur einasti maður sem er með undir 2 milljónum á mánuði keypt sér húsnæði á frjálsum markaði. Það er óskiljanlegt að það eigi ekki að hækka frítekjumörk örorkulífeyrisþega, það er algerlega með ólíkindum.

Flokkur fólksins mælti líka, eins og ég sagði áðan, fyrir því að afnema algerlega skerðingar á launatekjur eldra fólks. Þegar ég fór fram á að við fengjum að mæla fyrir þessu var Ásmundur Einar Daðason hæstv. ráðherra velferðar og barnamála. Það var tekið utan um málið og hann ætlaði nú aldeilis að láta reikna það út hvort það væri rétt sem gögn Flokks fólksins og útreikningar bentu til, að það myndi hreinlega vera ábati fyrir ríkissjóð að fella niður allar skerðingar á launatekjur aldraðra. Það var svo einkennilegt að við fengum aldrei nokkurn tíma að vita hvað kom út úr því, nema bara: Heyrðu, þetta er bara alrangt hjá ykkur. Það sagði nefnilega Capacent, nánast daginn áður en þeir fóru á hausinn. Við fengum aldrei að sjá forsendurnar eða nokkurn skapaðan hræranlegan hlut um það hvernig það hefði verið reiknað út til þess að reyna að sýna fram á að útreikningarnir sem Flokkur fólksins lagði fram hefðu verið rangir.

Það þýðir ekki að tala bara alltaf um að það kosti 100 milljónir hér og 100 milljónir þar. Það verður líka að átta sig á því, ef það eru 100 milljónir frá ríkissjóði, hvað hann fær þá í staðinn. Hvað fær hann í staðinn þegar öryrkjamamman og -pabbinn geta keypt skólatösku og geta keypt nýja skó og úlpu á barnið sitt fyrir jólin? Hvað kemur í ríkiskassann þegar þau geta gefið fólkinu sínu almennilega að éta með því að fara út í búð og kaupa eins og annað fólk eitthvað annað en hrísgrjón, grænar baunir og haframjöl? Það verður að reikna dæmið til enda, virðulegi forseti. Þessi ákvörðun um að afnema frítekjumark vegna launatekna aldraðra er talin kosta ríkissjóð 540 milljónir. Þetta er bull, virðulegi forseti. Við vitum það að skatttekjurnar munu aukast. Hvað skyldi nú ríkissjóður taka af hverjum 100.000 kr. sem þessir einstaklingar munu vinna sér inn? Þið vitið það. Það vita það allir sem vita vilja að við borgum hellingsskatta hér og sennilega, þegar teknir eru allir aukaskattarnir og óbeinu skattarnir og virðisaukaskatturinn og allt saman ofan á heila klabbið, þá eru bara nokkrar krónur eftir af hundraðþúsundkallinum af því að ríkið er búið að hirða það allt saman í einhverju formi.

Virðulegi forseti. Þetta er sá málaflokkur sem ég brenn fyrir. Það er að hjálpa fólkinu okkar, mæta því þar sem það er, sýna að hér séu stjórnvöld sem láta fólkið sitt raunverulega varða og séu að vinna fyrir alla, eins og kemur fram í stjórnarsáttmálanum. Þau vilja vinna fyrir alla. Hæstv. fjármálaráðherra hefur stundum sagt að ekki sé hægt að gera allt fyrir alla. Það er enginn að ætlast til þess. Það er bara verið að tala um að forgangsraða fjármunum, að það sé kannski ekki verið að lækka álögur á milljarðamæringa og láta um leið aðra í þjóðfélaginu svelta, að láta ekki einhverja safna auð með augun rauð á meðan hina brauðið vantar. Það er það sem við erum að tala um. Ríkisstjórn fyrir allt samfélagið er ríkisstjórn sem mismunar ekki þegnunum. Það er enginn að tala um að allir eigi að vera eins. Það er enginn að tala um Castro-Kúbu, með fullri virðingu fyrir henni. Það er bara verið að tala um að við séum ekki hér að horfa upp á fátækt fólk eina ferðina enn, eitt árið enn, loka augunum, snúa blinda auganu að því og þykjast ekkert vita og láta eins og meðaltalið hjá OECD segi að við höfum það svo rosalega gott. Eðli málsins samkvæmt kemur út ágætismeðaltal á laununum mínum og öryrkjans en ég er ekki viss um að öryrkinn, sem eingöngu er á framfærslu almannatrygginga, myndi viðurkenna að hann hefði það eins gott og meðaltalið gæfi til kynna.

Við skulum átta okkur á því að sú verðbólga sem við erum að taka í fangið núna mun líka stórauka útgjöld ríkissjóðs hvað varðar verðbótahækkunina í sambandi við lánin okkar og annað slíkt, þetta er á áttunda milljarð. Þannig að það er verðbólgan sem við þurfum að ná niður. Við þurfum að berja þessa verðbólgu niður með öllum mögulegum ráðum og ég er að vona að það verði gert. En til þess verður að fara að úthluta og og byggja almennilega af húsnæði. Fasteignamarkaðurinn er hér gjörsamlega í rusli. Það er með hreinum ólíkindum að ekki skuli vera búið að grípa þar inn í fyrir löngu áður en við verðum gjörsamlega búin að fá þetta allt í buxurnar.