fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágætissvar. Mig langar þá að fara með þessa umræðu aðeins lengra. Nú erum við í þeirri stöðu að ríkissjóður tekur á sig mikið högg út af heimsfaraldrinum, eins og við vitum, og skuldastaðan er þannig að kannski er ekki hægt að gera allt sem við vildum fyrir þá sem höllustum fæti standa.
Við höfum auðvitað okkar metnað og markmið til að gera vel. En mig langar að spyrja, af því að við í mínum flokki, Viðreisn, höfum verið svolítið áhugasöm um að benda á að ágætistekjuöflun fyrir ríkissjóð, til að mynda til að koma til móts við þennan hóp, gæti verið að breyta fyrirkomulagi veiðigjalda, fiskveiðistjórnarmálunum okkar: Sæi þingmaðurinn það ekki sem góða leið til að mæta þeim viðbótarútgjöldum sem þarna eru til skemmri tíma að bæta við tekjustofninn með þeim hætti að auka við veiðigjöldin?