152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:11]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir andsvarið. Flokkur fólksins hefur ítrekað mælt fyrir frumvörpum um að afnema með öllu skerðingar vegna launatekna aldraðra og öryrkja og gefa þeim kost á því að laga sig að vinnumarkaðnum og efla þann mannauð sem felst í þeim þjóðfélagshópi. Við höfum svo sannarlega kallað eftir því að kalla allt það fram sem við mögulega getum hjá einstaklingnum til að gefa honum kost á að bjarga sér sjálfur. Það yrði ekki bara ábati fyrir viðkomandi heldur fyrir samfélagið allt í heild sinni. Ég tek svo sannarlega undir það með hv. þingmanni að við eigum að afnema þessar skerðingar og gefa fólki kost á því að hjálpa sér sjálft.