152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:16]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta var svolítið snúið vegna þess að ég er ekki þeirrar skoðunar að einhver eigi að geta verið hér án þess að leggja neitt af mörkum til samfélagsins ef hann getur. Mannauður felst ekki einungis í vinnandi fólki. Mannauður felst líka í börnunum okkar sem fá kannski ekki tækifæri til að taka þátt í tómstundum eða einu eða neinu vegna fátæktar. Mannauður felst í öllum þeim sem eru hér og fá ekki að njóta sín, ég er að kalla eftir því að virkja þann mannauð. Ég vona að þetta svari spurningunni a.m.k. að einhverju leyti. Nei, mannauður er ekki bara vinnandi manneskja. Mannauður er í okkur öllum og við eigum að fá að njóta okkar hvert á sínu sviði eins og við erum og aldrei þurfa að búa við þá hömlur sem fátæk börn, 12–15% íslenskra barna, þurfa t.d. að búa við í dag. Ég vil fá þann mannauð virkjaðan, lofa þeim börnum að njóta sín og vera til.