152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:17]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Nú hjó ég eftir orðunum „að leggja af mörkum til samfélagsins“. Þetta hefur mjög lengi verið mér hugleikið. Hvað er það að leggja af mörkum til samfélagsins? Er það endilega vinnuframlag og er það vinnuframlag gegn launum og helst fyrir einhvern annan? Ég skynja ákveðna mótsögn í málflutningi þingmannsins sem felst í því að hún nefnir annars vegar að hún telji ekki rétt að hún fái skattafslátt vegna sinna ágætu launa en hins vegar að hún telji rangt að framlag ríkisins til framfærslu fólks sé skert vegna vinnuframlags. Mig langar að spyrja þingmanninn: Á hvaða tímapunkti, við hvaða launamark, telur hv. þingmaður rétt að framlag ríkisins til framfærslu einstaklings verði skert eða fellt niður vegna þess að sjálfsaflatekjur viðkomandi séu orðnar of háar?