152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:19]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ræðuna, innblásin eins og endranær. Ég er algjörlega sammála henni um að forgangsröðun í fjárlagafrumvarpinu er mjög bjöguð og leggur ekki, raunar langt í frá, nógu ríka áherslu á að bæta kjör þeirra verst settu í samfélagi okkar.

Ég hjó hins vegar eftir athugasemdum hv. þingmanns hvað varðaði loftslagsbreytingar og fjármagnið sem verið er að veita í þá baráttu. Mig langar að ræða aðeins við hana um forgangsröðun fjármuna og „Fólkið fyrst“ í þessu samhengi, vegna þess að þó að við tökum kannski ekki eftir því akkúrat núna að loftslagsbreytingar hafi mikil áhrif hér á Íslandi munu þær gera það ef við bregðumst ekki við. Við eigum undir högg að sækja t.d. varðandi hækkun sjávarmáls og annað slíkt, þannig að framtíðarkynslóðir, fólkið sem er framtíðin okkar, mun bera skarðan hlut frá borði ef við bregðumst ekki við strax þrátt fyrir að við sjáum ekki enn afleiðingar þess. Ég velti fyrir mér: Getum við ekki bara gert hvort tveggja, hv. þingmaður? Og er það ekki fólkið fyrst að berjast gegn loftslagsvánni?