152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:21]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir andsvarið. Gera hvort tveggja? Jú, ég hef ítrekað sagt að ef við getum tekið 13 milljarða til að setja í loftslagsvána, sem sannarlega er fyrir hendi og við ættum nú að vera voða góð og elskuleg og hugsa til komandi kynslóða, þá vil ég um leið setja akkúrat tvisvar sinnum meira í fátæka fólkið. Þá vil ég taka fjármagn frá þeim sem eiga nóg af því: Ég vil taka það frá bönkunum. Ég vil taka það af sjávarauðlindinni. Ég vil taka frá sægreifunum, og gjörið svo vel og takið frekari þátt í samfélaginu en þið gerið raunverulega. Það er það sem ég er að segja: Fólkið fyrst. En líka það að ég efast um að fátækt fólk sé einmitt að velta því fyrir sér hvað það eigi að gera til þess að eyða fleiri krónum í baráttuna við loftslagsvána þegar það á ekki fyrir næstu máltíð. Ég efast um að það sé svoleiðis. Þegar ég tala um að fólkið eigi að koma fyrst þá er ég að segja: Við skulum hjálpa öllum til að taka þátt í samfélaginu og berjast sameiginlega gegn loftslagsvánni en ekki að vera að sýna það svart á hvítu að til séu 13 milljarðar í baráttuna við loftslagsvána á meðan ekki eru til peningar til að gefa fólki að borða. Ég vil sækja peningana til þeirra sem eiga nóg af þeim fyrir. Setjum 13 milljarða í loftslagsvána, setjum 300 milljarða í loftslagsvána en setjum alltaf tvisvar sinnum meira til þeirra sem þurfa á því að halda.