fjárlög 2022.
Forseti. Þetta er viðamikið skjal sem við erum með hérna, sem var tilbúið fyrir lifandis löngu en kom of seint inn í þingið, eins og oft hefur gerst í tíð þessarar ríkisstjórnar, seint og síðar meir. Það þurfti að fresta þessum þingsetningarfundi tvisvar til að bíða eftir útbýtingu fjárlagafrumvarpsins af því að það þarf víst að leggja fram á fyrsta fundinum. Þetta var samt eiginlega þriðji hluti fyrsta fundarins og þá var frumvarpið loksins lagt fram þrátt fyrir að það hefði átt að vera tilbúið, eins og var sagt áðan, fyrir kosningar.
Það eru nokkur atriði sem mig langar til að fjalla um dálítið tengd fjárlögum, þau koma kannski aðeins inn í þetta. Þetta eru spurningar sem þarf að svara og ég ætla að fara aðeins óhefðbundna leið hvað mig varðar í áttina að því. Þá langar mig til að reyna að draga umhverfisráðherra aðeins inn í umræðuna út af ákvæðum í stjórnarsáttmálanum um 55% samdrátt í losun en við vorum í 29% fram að því. Í fyrri fjármálaáætlun og fjárlögum var gert ráð fyrir því, í áætlun um að ná markmiðum í loftslagsmálum, að það yrði 29% samdráttur. Allt í lagi. Gert var ráð fyrir 10 milljörðum eða svo á ári í nokkur ár til að fjármagna þá áætlun, námundum þetta bara að 30% — 30% samdrætti. Frábært. Síðan kom allt í einu tilkynning í vor um að Ísland ætlaði að ná 55% samdrætti, 15% meira, 50% aukningu á samdrætti í rauninni — það er erfitt að segja þetta þannig, en allt í lagi — úr 30%, eða í rauninni úr 40% eins og var sagt, og í 55%, en raunin var að það áttu að vera 30% og það er búið að hækka það upp í 55%. Við erum að tala um næstum tvöföldun á raunmun. Vandamálið er að við vissum ekki þá hvort 55% þýddi í raun og veru 55% samdráttur eða hvort það var eins og við erum með núna, afsláttur af þessum 40% sem við áttum að ná, þ.e. með Evrópusambandinu og Noregi. Þessir aðilar ætluðu saman að ná 40% samdrætti en hlutdeild Íslands í því var 29%. Svo segir Ísland í vor: Núna er nýtt markmið, með Evrópu og þá Noregi, 55% samdráttur. Allt í lagi, þetta er frábært, 55% samdráttur. Þá spyr maður sig að sjálfsögðu: En hver er hlutdeild Íslands? Er hún 55% eða verður hún rúm 40% eða hvað? Það fengust náttúrlega engin svör við því. Núna er hins vegar búið að setja í stjórnarsáttmálann að það sé sjálfstætt markmið Íslands að ná 55%. Það getur vel verið að fólk dragi það upp úr hatti sínum að miðað sé við einhver allt önnur ár en aðrir gera, þannig er oft fenginn út 55% samdráttur. Hver veit? Ég hef ekki hugmynd um það en ég geri ráð fyrir að þetta passi við hina. Í fjármálaáætlun síðast, eftir að búið var að gefa út að ná ætti 55% samdrætti, var bætt við 1 milljarði. Það er sami milljarður og er núna í umhverfismálunum og er talað um að eigi að bæta við og viðhalda á hverju ári í tíu ár, sem sagt 10 milljarðar alls, 1 milljarður á hverju ári. Það er væntanlega til að ná þessu nýja markmiði um 55% sjálfstæðan samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda, sem er breyting frá því markmiði sem allar áætlanir gerðu ráð fyrir áður, 30%.
Ég skil ekki af hverju það kostar 10 milljarða á ári að fjármagna áætlanir um að ná 30% samdrætti en svo kostar bara 1 milljarð að ná 25% samdrætti í viðbót. Ég fatta það bara ekki, þannig að mig langar til að spyrja umhverfisráðherra og draga hann inn í þessa umræðu: Dugar núverandi áætlun sem við erum með um losun á gróðurhúsalofttegundum? Er hún með aðgerðir til að ná 55% eða þarf að bæta einhverju sérstöku við? Dugar núverandi fjárveiting í fjármálaáætlun og fjárlögum til þess að ná þessu markmiði, til þess að ná áætlun um 55%? Ég býst fastlega við því að svarið sé nei. En ef ekki, hvað þá? Bíðum við þá með það þangað til í fjárlögum 2023 að fá nýja áætlun um fjárframlög o.s.frv. fyrir nýrri áætlun sem gerir ráð fyrir fleiri verkefnum til að ná 55% markmiði? Þá erum við komin rosalega nálægt 2030-viðmiðinu, það fer að slaga mjög hátt í það. Mig langar að fá umhverfisráðherra til að koma hingað og segja okkur af hverju þetta eru raunhæf markmið hjá þeim, með þessu fjármagni og þeirri áætlun sem þau hafa í höndunum. Hvað hafa þau annars dregið úr stjórnarsáttmálanum eða þeirri vinnu til viðbótar þeim áætlunum sem þegar er búið að leggja fram til að útskýra þennan mun frá 30% upp í 55%? Allt í lagi, afgreiðum það þannig. En þetta er mikilvæg spurning, finnst mér, sérstaklega með tilliti til fjárlaga.
Annað sem mig langar til að fjalla um eru lífeyrisskerðingar ellilífeyris. Ég fékk ábendingar um það fyrir kosningar að eitthvað skrýtið væri í gangi varðandi tekjuskerðingar ellilífeyris. Allt í lagi. Ég fer inn á reiknivél Tryggingastofnunar og slæ inn ellilífeyrisþega sem er með 400.000 kr. í atvinnutekjur og 400.000 kr. í greiðslur frá lífeyrissjóði. Ætlunin er þar að greiðslur frá lífeyrissjóði skerðist sem atvinnutekjur. Það er ákveðið frítekjumark sem ekki á að taka tillit til lífeyrissjóðsgreiðslna. Ef ég slæ inn sama einstakling 400.000 kr. — fyrirgefið, smávitleysa hjá mér. Þetta eru tvö dæmi, annars vegar um ellilífeyrisþega sem fær 400.000 kr. í atvinnutekjur, bara, og hins vegar ellilífeyrisþega sem fær 400.000 kr. í greiðslur frá lífeyrissjóði, bara. Þarna munar 56.000 kr. á útborguðum lífeyrisgreiðslum af því að greiðslurnar frá lífeyrissjóðnum eru skertar meira og frítekjumarkið virkar ekki sem hluti af atvinnutekjum. Og núna kemur það flókna þannig að ég bið fólk vinsamlegast um þolinmæði, það er ekki einfalt að útskýra þetta: Lög um tekjuskatt gera ráð fyrir því að lífeyrissjóðsgreiðslur séu einfaldlega tekjur sem maður greiðir tekjuskatt af o.s.frv. Ekkert mál, það er mjög skiljanlegt. Almannatryggingar eru með undanþágu frá því að lífeyrissjóðsgreiðslur teljist sem atvinnutekjur.
Ókei. Skoðum það aðeins. Í 3. mgr. 16. gr. almannatryggingalaga segir að þegar um sé að ræða örorkulífeyri teljist það ekki til tekna þrátt fyrir aðra hluta í þessum lögum, sem sagt lögum um slysatryggingar almannatrygginga og lögum um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Flott. Samkvæmt þessari grein eru það ekki tekjur, atvinnutekjur, þegar maður fær greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Þar af leiðandi virkar frítekjumark atvinnutekna ekki, það fer ekki inn í þann hluta. Ókei. Flott. En í 4. mgr. 16. gr. er ekki að finna sömu undanþágu og því teljast greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum í rauninni til tekna. Í greininni segir þegar um sé að ræða ellilífeyri — þetta er afleiðing af því að lögunum var breytt 2016, en þá var gerður greinarmunur á örorkulífeyri og ellilífeyri af því að þeir sem voru með ellilífeyri fóru inn í annað kerfi, nýtt kerfi, á meðan þeir sem voru á örorku vildu ekki vera þátttakendur í þeim breytingum — teljist ekki til tekna þrátt fyrir 2. mgr. um bætur samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga og lögum um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, greiðslur úr séreignarlífeyrissparnaði og viðbótartryggingavernd samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Sama eigi við sambærilegar bætur frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við. En þarna er ekki setningin „greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum“, hana vantar.
Í 22. gr. almannatryggingalaga er síðan fjallað um þetta sérstaka frítekjumark vegna atvinnutekna. Þar segir að greiða skuli örorku-, slysa- eða endurhæfingarlífeyrisþega — nota bene ekki ellilífeyrisþega — tekjutryggingu til viðbótarlífeyri hans að fjárhæð næstum því 1 milljón. Hafi lífeyrisþegi tekjur samkvæmt 2. og 4. mgr. 16. gr. — ekki 3. mgr., en í henni er fjallað um örorkulífeyri, merkilegt nokk — skal skerða tekjutrygginguna um 38,35% þeirra tekna uns hún fellur niður. Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum undir 300.000 kr. á ári skuli þó ekki skerða tekjutryggingu samkvæmt þessari málsgrein. Þetta er áhugavert því þarna er munur á. Af því að það vantar ellilífeyri þarna inn tekur þessi grein ekki tillit til ellilífeyris.
Það er því ákveðið misræmi á milli þess hvernig lögin eru nú og hvernig þau voru áður þegar greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum töldust ekki vera að tekjur. En lögin eins og þau voru, ef við förum t.d. aftur í tímann til ársins 2014, tilgreindu einmitt að lífeyrissjóðsgreiðslur teldust ekki sem slíkar tekjur fyrir ellilífeyrisþega. Þá var greinin svona: Þegar um er að ræða elli- og örorkulífeyri teljast ekki til tekna lög um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Þarna er ellilífeyrir líka. Orðið „elli“ var fellt brott úr lögum nr. 116 frá 2016. Samkvæmt 3. og 4. mgr. 16. gr. almannatryggingalaga eru greiðslur úr lífeyrissjóðum atvinnutekjur fyrir ellilífeyrisþega og því ætti sérstakt frítekjumark samkvæmt þeirri grein almannatryggingalaga að eiga við um greiðslur úr lífeyrissjóði. En 23. gr. fjallar einmitt um fjárhæð ellilífeyris og sveigjanleg starfslok, að fullur ellilífeyrir skuli vera rúmar 3 milljónir ári, ellilífeyrir skuli lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, samanber 16. gr., uns lífeyrir fellur niður. Ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og þá skal ellilífeyrisþegi hafa 1,2 milljónir króna sérstakt frítekjumark til atvinnutekna.
Þetta er áhugavert af því að það er búið að fella burt orðið „elli“ og það er búið að fella burt greiðslur frá skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum úr 16. gr. sem á að fjalla um hvaða almennu tekjur, sem eru almennt atvinnutekjur, teljast ekki sem atvinnutekjur í skilgreiningu laga um almannatryggingar. Þetta þýðir að það er fullt af ellilífeyrisþegum sem fá greiðslur úr atvinnubundnum lífeyrissjóðum sem eru ekki flokkaðar sem atvinnutekjur af Tryggingastofnun en sem á samkvæmt lögum að gera. Að mínum dómi, miðað við hvernig forsagan er og hvernig þetta hefur þróast, er það einfaldlega vegna mistaka, líklega vegna þess að þegar öryrkjar ákváðu að vera ekki með í þessum breytingarpakka þurfti að skipta þessum greinum upp í tiltölulega miklum flýti árið 2016. Þannig að á sama hátt og við vorum að glíma við frumvarp þar sem vísað var í rangar greinar og ekki mátti skerða neinn lífeyri, kostaði 1,5–2 milljarða á mánuði í upphafi árs 2017, þá virðumst við vera að glíma við villu hér.
Þetta hefur þó nokkur áhrif í, myndi ég giska á, í samhengi fjárlaga fyrir næsta ár því að ef við vitum af þessari villu viljum við væntanlega alla vega gera ráð fyrir henni þótt það eigi síðan eftir að gera upp að hluta til árin 2106, 2017, 2018, 2019 og 2021. Ég hlakka til þess að fjárlaganefnd skoði hvort þessi galli sem var verið að benda á standist. Þetta eru ekki fáir milljarðar. Þetta mál er ekki jafn mikið að umfangi og málið sem við glímdum við 2017, nokkrir milljarðar á mánuði. Ég myndi giska á að þetta sé sambærileg upphæð á ári eða eitthvað því um líkt, frekar en á mánuði, sem er þó bót í máli. En þetta er samt ekki lítið að glíma við og það er dálítið sorglegt að þurfa að takast á við þetta mál núna eftir að þingið er búið að vera í fríi í hálft ár og hafa bara þennan tíma rétt fyrir áramót til að takast á við það.
Það er ýmislegt annað í þessum fjárlögum sem ég ætla að taka klassísku gagnrýnina á. Það er það sem allir kannast við, lög um opinber fjármál. Þar á samkvæmt öllu, lögunum, forminu, sem við erum búin að brenna okkur dálítið mikið hér á á undanförnum dögum og vikum, að vera kostnaðarmat á stefnu stjórnvalda, það á að vera ábatagreining og það á að vera forgangsröðun. Það skiptir máli að hafa það í fjárlögunum svo við vitum af hverju ríkisstjórnin er að biðja um hitt og þetta. Ef ég fletti handahófskennt upp á einhverri síðu þá stendur hér að starfsaðstæður kjörinna fulltrúa verði bættar, í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Hvert er markmiðið með þessu? Markmiðið er að sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi. Frábært. Mér líst mjög vel á það. Hvað kostar þetta? Það er sagt „innan ramma“, sem er rosalega merkileg framsetning. Þegar ég var reyna að vinna mig í gegnum fjárlögin, fjármálaáætlanir, þá sá ég bara einhverja risastóra upphæð sem er hinn svokallaði er rammi. Það er upphæð fjárlaga í þessu málefnasviði frá því í fyrra, það er ramminn. Æðislegt. Hvað þýðir hann í stóra samhenginu? Getur einhver sagt mér það? Nei, ókei. En hérna, þar sem við erum með lög um rekstur sjúkrahúsa og það að hafa barnaverndarnefndir og Barnastofu og Persónuvernd og ríkislögmann og þess háttar? Af hverju kostar svona mikið eða svona lítið að reka þessar stofnanir? Hvaða verkefnum sinna þær sérstaklega? Ef við erum með þessa tengingu milli á þeirra — við erum að setja lög hér á Alþingi. Við erum að taka almannafé og setja lög um hvernig við ætlum að nota það almannafé í þau verkefni sem við höfum samþykkt lög um að ríkið, framkvæmdarvaldið, sinni. Þá þurfum við alltaf að geta spurt: Hérna er verkefni sem við á löggjafarþinginu erum búin að setja ykkur í framkvæmdarvaldinu fyrir, hvað þurfum við mikinn pening í það? Stjórnarfrumvörp eru sett upp á þann hátt núna að gert er kostnaðarmat á þeim öllum. Frábært. En ef ég spyr fimm árum seinna hvert kostnaðarmatið sé á í raun nákvæmlega sama frumvarpi, þeim verkefnum sem voru sett í því frumvarpi, veit það þá einhver? Nei, ekki hugmynd. Af hverju ekki? Það er ekkert gott svar við því.
Við eigum að vita það. Að sjálfsögðu eigum við að vita það. Þegar um er að ræða þessi lögbundnu verkefni sem við setjum framkvæmdarvaldinu að framfylgja þá eigum við að geta rakið okkur niður á þær fjárheimildir sem við samþykkjum til þeirra verkefna, sem við höfum líka samþykkt að framkvæmdarvaldið eigi að sinna. Við eigum alltaf að geta spurt okkur: Er hægt að gera þetta öðruvísi eða á betri hátt? Við eigum alltaf að vera að spyrja framkvæmdarvaldið að því. Af hverju er þetta svona en ekki hinsegin sem er ódýrara og betra? Þess vegna þarf kostnaðarmat í fjármálaáætlun við stefnu stjórnvalda og þess vegna þarf líka ábatagreiningu, af því að stjórnvöld eiga að leggja fram marga möguleika. Við segjum t.d.: Leysið vandamálið. Vinsamlegast passið upp á að börn fái menntun. Það er í raun einföld uppskrift hvað lög um menntun varðar. Hvernig þið stjórnvöld gerið það er okkur nokk sama um, við viljum bara tryggja þessi réttindi. Þá kemur framkvæmdarvaldið með til baka: Já, við ætlum að gera það með þessu og hinu og þessari aðferð. Eða við getum gert það einhvern veginn öðruvísi. Við getum gert það með því að láta sveitarfélögin reka skólana eða við getum gert það með því að fara í útboð og fá einkaskóla fram og til baka, það skiptir ekki máli hvert við borgum, hingað eða þangað. En þá þarf að rökstyðja það að önnur leiðin sé arðbærari eða ábatasamari en hin og við fáum aldrei þann rökstuðning. Hann vantar alltaf. Þá getum við ekki tekið ákvörðun um það hvora leiðina eigi að fara. Vandamálið er í rauninni stærra en það því að við fáum ekki einu sinni að velja um leiðir. Við fáum bara eina leið. Það er bara þessi leið, búið. En hvað skoðuðuð þið annað? Það eru aldrei nein svör við því. Við skoðum ekkert annað. Þetta var bara besta leiðin, búið.
Framkvæmdarvaldið á að sýna okkur að aðrir möguleikar hafi verið skoðaðir og að þeir hafi verið útilokaðir af því að þeir voru of dýrir eða of flóknir eða of mannfrekir, gefa einhverjar ástæður fyrir því að öðrum leiðum var hafnað. Þá kemur að þessu, „innan ramma“. Heildarfjárlögin eins og þau voru síðast. Það sem við glímum við í fjárlögunum núna er svokölluð útgjaldabrú. Það koma bundin útgjöld, niðurfelld, aðhald, útgjaldasvigrúm og launa- og verðlagsbætur og úr því verður nýr rammi næsta árs. Í fjárlögunum erum við yfirleitt að skoða einmitt þá brú, þá liði, bundin útgjöld, útgjaldasvigrúm og aðhald o.s.frv. Inni í þessu er stefna stjórnvalda, eru viðbætur sem koma eða niðurfellingar, hætt er við einhver verkefni eða þess háttar, miðað við ramma fyrra árs, og við erum að greina hverjar breytingarnar eru og af hverju — og það er lykilatriði — er verið að fara í að bæta starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. Það þarf að vera svar við því. Það verður að vera hægt að segja hvað það kostar og hver ábatinn af því er. Ábatinn þarf ekki, eins og ég sagði við hæstv. ráðherra í andsvörum við flutningsræðu hans, að vera hárnákvæmur eða greindur. Það er ekki heldur krafa um að það hafi a.m.k. verið lagt mat á það. Kannski er ekki alltaf hægt að leggja peningalegt mat á það, alls ekki, og það er heldur ekki það sem beðið er um, heldur hver ábatinn er fyrir samfélagið almennt. Í þessu er verið að gera sveitarfélögin að vettvangi lýðræðislegrar starfsemi. Það er bara ábati út af fyrir sig. Mér er í rauninni alveg sama hvað hann kostar. Ef það væri komið upp í einhverja tugi milljarða myndi ég kanski fetta fingur út í það en sé það innan hóflegra og skynsamlegra marka er mér nokk sama hvað lýðræðið kostar. Þar væri líka tækifæri til að segja: Það eru til aðrar betri aðferðir til að ná sama markmiði með minni kostnaði. En við fáum ekki að bera saman þessar aðferðir. Við fáum ekki að vita hvað nákvæmlega er verið að gera, hvað það kostar og af hverju.
Það sem ég skoða yfirleitt alltaf er útgjaldasvigrúmið og líka aðhald. Útgjaldasvigrúmið á í raun og veru að vera stefna stjórnvalda: Þetta kostar hún. Þetta er það sem við ætlum að gera. Og það sést ef stjórnvöld væru ekki hérna að þá væri ekki um að ræða nein ný verkefni að þessu leyti. Það væri 0 í útgjaldasvigrúminu svokallaða. Þannig að við skoðum það alveg sérstaklega. Hvað eru stjórnvöld að gera og af hverju? Það er alltaf stærsta spurningin þegar við erum að glíma við fjárlög.
Hinn hlutinn sem ég hef gert athugasemdir við er aðhald, aðhaldskrafa. Í þeim málaflokki hjá sveitarfélögunum eru 39 milljónir. Það er ekkert rosalega mikið. Í kaflanum Réttindi einstaklinga eru t.d. 249 milljónir í aðhaldskröfu. En hvað á að gera? Hvernig aðhald á að vera? Það eru enginn með svör við því. Af hverju ekki? Af hverju erum við ekki með áætlun sem sýnir hvar tækifærin eru til aðhalds? Það er líka spurning sem framkvæmdarvaldið á alltaf að vera að spyrja sig. Og þegar bæði framkvæmdavaldið og við, allir, vita hvar tækifæri eru til aðhalds þá erum við að sjálfsögðu tilbúin til að fjármagna það, af því að það kostar oft fé, eins og talað hefur verið um varðandi tækniþróun þar sem er stofnkostnaður sem sparar okkur fé til lengri tíma. Þá er rosalega auðvelt fyrir framkvæmdarvaldið að koma og segja: Heyrðu, við erum með verkefni hérna til að gera menntun ódýrari, einfaldari, skilvirkari fyrir nemendur og sem bætir líf og fjör. Og við segjum: Frábært, fjármögnum það af því að það er góð fjárfesting til framtíðar. Við eyðum milljarði núna en við græðum óendanlega mikið til óendanlegrar framtíðar, ef dæmið gengur þannig upp. Hins vegar er bara skellt inn 2,5%, gjörðu svo vel, aðhald, þú verður bara að redda þessu. Þannig hefur það verið undanfarið rúmt kjörtímabil sem ég hef verið að skoða þessi mál. Það er ákveðinn geðþótti, það er slump: Við vorum með 17,2 milljarða síðast, stillum það aðeins. Við erum með eitthvert verkefni, það kostar eitthvað smá en segjum bara að það sé innan ramma. Hvað þýðir það, innan ramma? Bíddu, er það ekki samt, fyrirgefið, nýtt verkefni sem þú ert að takast á hendur? Þessir peningar voru væntanlega nýttir í eitthvað annað. Hvað varð um það verkefni? Ætti ekki að fella það niður ef ekki er þörf á því lengur? Þá þarf ríkisstjórnin sérstaklega að sækja um eða tilgreina að þeir peningar sem bætast þá inn í rammann aftur, séu vegna nýrra verkefna, ekki bara innan einhvers ramma.
Þetta hefur verið áhugaverð barátta, að draga meira gagnsæi út úr fjárlagaferlinu. Það hefur ekki tekist enn þá en miðar í áttina að því. Fólk kinkar kolli en svo gerist náttúrlega ekkert, það er þetta klassíska.
Það síðasta sem mig langar til að tala um í þessari umferð er yfirleitt stærsti liðurinn, launa- og verðlagsbætur, sem hv. þm. Kristrún Frostadóttir kom aðeins inn á áðan. Þarna erum við með, hvað á ég að segja, þetta er innbyggð verðtrygging. Kjarasamningar og þess háttar eru þarna líka, allt í lagi, en verðlagsbæturnar eru alla vega hluti, það er verið að verðlagsbæta allt. Það er innbyggður vöxtur í því. Þessi vítahringur verðbólgunnar sem matar sjálfan sig. Þetta er eins og ef ég leigi íbúð og er með hana verðtryggða, það veldur því að leigan hækkar út af verðbólgunni því að heildahúsnæðisverð eða leiguverð hækkar, verðbólgan hækkar, sem fer aftur inn í leigusamninginn og ég þarf þá að borga hærri leigu sem er bara nýr hringur og ég borga hærri leigu o.s.frv. Þetta er keðjuverkun og vítahringur sem skemmir allt hjá okkur. Það þarf alltaf að reikna með einhverjum sjálfvirkum vexti þarna. Og það er sérstaklega slæmt þegar stjórnvöld stækka þennan hring í staðinn fyrir að reyna að rjúfa hann. Það er gert með aukningu á krónutölusköttum upp á 2,5%. Þó að þeir séu undir verðbólguviðmiði kyndir það samt undir þar, á röngum stað. Með því að hella peningum í eftirspurn á húsnæði hækkar húsnæðisverðið augljóslega, sem býr til verðbólgu, því að húsnæðisverðið fer inn í verðbólguviðmiðin sem hækka lán hjá þeim sem eru með verðtryggð lán, það hækkar þá þessar verðlagsbætur sem eru í fjárlögunum. Þannig verður til hringavitleysa. Í staðinn fyrir að klippa á þetta og reyna að halda einhvers konar jafnvægi í ríkisfjármálunum er skortur á gagnsæi í öllu. Það er skortur á því að hugsa heildrænt. Það eina sem ég get komið með núna á þessum tíma er hvatning um að hætta þessu.