fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og skil vel að hann geti ekki tilgreint nákvæmlega um hvaða tölur er að ræða. Ég heyrði einhvers staðar talað um að ríkisstjórnin, sem hyggur á stórsókn í geðheilbrigðismálum, ætli sér að setja 400 milljónir í geðheilbrigðismál vegna Covid á næsta ári. Ef maður ber það saman við 100 milljarða í ferðaþjónustu vegna Covid er þetta auðvitað svolítið hrópandi og eins ef maður ber það saman við tölulegar upplýsingar sem við fengum frá Sjúkratryggingum Íslands vegna frumvarps, sem samþykkt var einum rómi hér á Alþingi, um greiðsluþátttöku vegna sálfræðinga, en þar var talað um að árlega myndi það kosta í kringum 875–1.750 milljónir á hverju ári. En við skulum hafa í huga að á síðasta ári tóku 47 einstaklingar eigið líf. Ríkisstjórnin ætlar sér að setja skitnar 400 milljónir í aukaframlag vegna geðheilbrigðismála til að rétta við þann mikla halla sem er í kerfinu.