152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég spurði einmitt þessara tveggja spurninga: Dugar núverandi áætlun um aðgerðir til að ná 55% samdrætti í losun? Ég skil á svari ráðherra að það geri það ekki. Það þurfi meira til. Allt í lagi, ég skil það alveg, enda er nýbúið að setja þetta nýja markmið. Ég spyr þá í kjölfarið: Dugar núverandi fjárveiting fyrir áætluninni? Hún dugar væntanlega fyrir þessum 30%, geri ég ráð fyrir. Hversu mikið af þessum mun, frá 30% upp í 55%, er þá dekkað samkvæmt einhverjum vonum um að ná að koma einhverjum verkefnum af stað strax á þessu ári til að brúa bilið héðan frá og upp í 55%? Er slíkt að finna í þessu fjárlagafrumvarpi? Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta er færanlegt markmið, þ.e. að lausnirnar eru færanlegar með nýrri tækni og þess háttar og við hoppum kannski á einhverja aðra lausn eftir þrjú ár þegar eitthvað nýtt kemur fram eða þegar Carbfix verður voðalega miklu betra á núll einni stundu, sem gæti leyst stóran hluta af vandanum. Segjum að það myndi gerast. Þá myndum við að sjálfsögðu geta hoppað til og nýtt fjármunina öðruvísi í einhvern tíma. Ég er bara að reyna að átta mig á samhengi þessara fjárlaga miðað við þá aðgerðaáætlun sem er til, hversu langt hún dugar upp í 55% og hversu langt fjárveitingin dugar líka. Það var bætt við milljarði. Hversu langt dugar þetta, að mati ráðherra?