152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:37]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og spurninguna. Ástæða þess að ég nefndi ekki öryrkjana er sú að ég er aldrei með blöðin svona tvíprentuð og ég fór bara með hálfa ræðuna. Þess vegna var líka þetta hik á mér áðan. Það er eitt af því sem ég ætlaði að ræða, þessi stóru mál, bæði öryrkjamálin, eldri borgara málin og loftslagsmálin og ýmislegt fleira sem ég verð að koma að hér síðar þegar við förum í næstu ræðu. Það var það sem ég flæktist hér í, af því að ég vissi að ég var búin með uppbyggingu Landspítalans.

Það hefur ekki komið til tals enn þá en við höfum gjarnan rætt þessi mál í fjárlaganefnd milli umræðna og þegar við höfum fengið frumvarpið til okkar, eins og hv. þingmaður þekkir. Þetta er bara eitthvað sem við þurfum að taka fyrir og verður væntanlega kallað eftir því af einhverjum innan nefndarinnar, hvort við þurfum að takast á við þetta, eins og við höfum gert, verið með orlofsuppbót og desemberuppbót sem ekki hefur verið skert og passað upp á það. Við brenndum okkur dálítið illa á því í fyrsta sinn. Það hefur ekki beinlínis verið tekin ákvörðun um það og fyrst og fremst hefur þetta viðbótarprósent verið rætt, en við ræðum þetta bara í fjárlaganefnd.