fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég vona svo heitt og innilega að það verði tekið til greina vegna þess að við vitum og við erum búin að gera okkur grein fyrir því í þessum sal að það eina sem skilar sér virkilega til ellilífeyrisþega og öryrkja og annarra eru skattlausar tekjur eins og kerfið er byggt upp. Auðvitað á það að vera í forgangi hjá okkur og algjörlega númer eitt, tvö og þrjú að breyta þessu kerfi þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því í hvert einasta skipti sem það er hækkun til þeirra sem verst hafa það að hún skili sér ekki í þeirra vasa heldur renni í gegnum þeirra vasa og beint yfir í ríkissjóð eða í sjóði sveitarfélaga.
Annað sem ég hef líka áhyggjur af er heilbrigðiskerfið. Þar eru 100 einstaklingar, eldri borgarar, lokaðar inni í kerfinu með 200.000 kr. kostnaði á sólarhring. Er ekki kominn tími til að taka á þessu? Er þetta ekki hluti af því að reyna að hætta að henda krónunni og spara aurana?