fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. forsætisráðherra og hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra að þau lögðu bæði ríka áherslu á að bæta þyrfti kjör öryrkja og eldra fólks sem væru í erfiðustu stöðunni. Þess sjást engin merki í fjárlagafrumvarpinu. Ég kalla það ekki merki um það að hækka örorku- og endurhæfingarlífeyri upp í þá krónutölu sem ellilífeyririnn er. Þannig er mál með vexti að munurinn á milli þeirra sem þurfa að treysta á greiðslur almannatrygginga og lægstu launa og launatryggingarinnar verður 88.000 kr. á mánuði 1. janúar.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún muni ekki örugglega fylgja eftir orðum hæstv. forsætisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra og taka til sinna ráða í fjárlaganefnd til að minnka þetta bil, því að það sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu er hlægilegt, leyfi ég mér að segja, þegar staðan er eins alvarleg og hún er.