fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér finnst þetta ekki hlægilegt. Þetta er fyrsta skref, eins og hæstv. ráðherra nefndi hér í gær. Það er langmikilvægast að við náum að taka á kerfinu til að koma í veg fyrir allar þessar skerðingar þar sem eitt leiðir af öðru. Sannarlega myndi ég vilja gera hlutina hraðar, ég myndi vilja gera það, ég játa það alveg. En þetta er það sem lagt er til í frumvarpinu að þessu sinni, og auðvitað erum við líka að tala um að auka félagslegt húsnæði þannig að fólk geti komist í skjól á viðunandi kjörum. Auðvitað eru aðgerðirnar margþættar sem koma þeim til góða sem lægst eru launaðir og eru í þessu kerfi; minnkandi greiðsluþátttaka o.s.frv. í sjúkratryggingum. Varðandi bein og bætt kjör, sem hv. þingmaður spyr um, þá er þetta það skref sem stigið er í frumvarpinu. Áherslan er lögð á það að ná sem allra fyrst niðurstöðu í það að breyta kerfinu þannig að það sé raunverulegur hagur fyrir öryrkja.