fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég get tekið undir það að við eigum að hækka atvinnutekjur lífeyrisþega. Það er partur af því sem hér er lagt upp með. Það hefur strandað mjög mikið á umræðu um starfsgetumat. Við þingmenn þekkjum það og þá útfærslu sem höfð hefur verið að leiðarljósi fram til þessa. Nú er hins vegar verið að leggja upp með aðra nálgun. Ég ætla að leyfa mér að treysta því að það sé betri leið sem nú er lagt af stað með en það sem við strönduðum á síðast, það er augljóst að við getum ekki haldið áfram þar. Hér er lögð mikil áhersla á að tekið verði upp nýtt kerfi og að fólk geti valið um hvort það fari inn í það nýja kerfi eða ekki. Og fari fólk inn í það getur það líka haft möguleika á því að fara til baka þannig að það hafi ekki í för með sér áhættu fyrir fólk ef það kýs svo. Þá er sérstaklega verið að tala um atvinnuþátttöku af því að það atriði var nefnt hér. Ég ætla bara að leyfa mér að segja að ég tel að það sem við þurfum fyrst og síðast að gera til þess að ná utan um þetta sé að bæta og breyta þessu kerfi. Það þarf að gerast hratt og ég vona að ráðherrann hafi það sem eitt af sínum fyrstu málum, og ég gat ekki heyrt betur en svo væri í gær.