fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Takk fyrir andsvarið. Ég mun auðvitað halda áfram hér eftir sem hingað til að leggja áherslu á þessi málefni. Við tökum þetta væntanlega til umræðu og umfjöllunar og förum í gegnum þær fjárhæðir sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu þegar heilbrigðisráðherra kemur til fundar við fjárlaganefnd og ræðum við hann hvernig hann hyggst dreifa þeim fjármunum. Ég læt ekki mitt eftir liggja í því að styðja við aukna sálgæslu eða sálfræðiþjónustu. Hvort henni er best fyrir komið með þeim hætti að greiða niður einkarekna þjónustu sálfræðinga eða með einhverju annars konar fyrirkomulagi verður ráðherrann auðvitað fyrst og fremst að vega og meta. Ég tel að við þurfum að auka aðgengi fólks að þessari þjónustu og við þurfum að finna út úr því í sameiningu hvernig það verður best gert. Við höfum örugglega ólíka sýn og ólíka nálgun á það. Þessi skref hafa skilað sér sem farin hafi verið og ég held að við getum haldið áfram að (Forseti hringir.) taka fleiri skref í átt að því að auka þessa þjónustu enn frekar og víðar um landið líka. Við megum ekki gleyma því (Forseti hringir.) að þetta snýst ekki bara um aðgengi hér á höfuðborgarsvæðinu heldur um allt land og þess vegna hafa þessi teymi komið sér afskaplega vel.