fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég ætla bara að taka undir það að alltaf er hægt að gera betur, ef svo má segja, í öllum rekstri, ríkisrekstrinum sérstaklega. Þau markmið sem við erum að leggja gríðarlega mikla áherslu á eru m.a. í gegnum margs konar stafræna þjónustu hjá hinu opinbera sem ég tel að verði til þess að kostnaður ríkissjóðs minnki. Það getur tekið ákveðinn tíma en ég held að m.a. í einhverju slíku þá dragi úr kostnaði, ekki endilega með því að skrúfa niður einhverjar stofnanir í heilu lagi eða eitthvað slíkt. Það hugnast mér ekki. En ég held að við getum og eigum, það er alveg rétt, alltaf að fara í gegnum það hvað við getum gert betur. Ég held að það sé fyrst og fremst háð því að mæta 21. öldinni og fjórðu iðnbyltingunni. Ef gengið er í þeim takti getur það orðið til þess að aðhald komi af sjálfu sér, þ.e. að útgjöld ríkisins verði minni þegar fram líða stundir.