fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég ætlaði svo sem ekkert að stilla honum upp við vegg og vera með einhverja sundurliðun hér, þetta var nú meira til að fá almenna tilfinningu fyrrverandi forsætisráðherra fyrir því sem við erum að ræða hér og verður auðvitað undir þegar landinu verður stýrt næstu fjögur árin.
Aðeins í framhaldi af þessu, af því að hv. þingmaður talaði svolítið um loftslagsmálin og umhverfismálin í ræðu sinni hér áðan, þá langar mig að vita hvort hann gæti kannski skautað yfir sína fyrstu tilfinningu gagnvart því hvernig honum líst á þá tilhögun að setja saman í eitt ráðuneyti loftslags- og umhverfismál og blanda þannig orkumálunum við, af því að ég veit að hann hefur miklar skoðanir á þessum málum öllum, og samhliða því að það hefur verið gagnrýnt af mörgum að þetta sé allt komið saman undir nýtt ráðuneyti. Það væri forvitnilegt að heyra í hv. þingmanninum um þetta.