fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég lagði strax við hlustir þegar hann hóf mál sitt á því að tala um þessa miklu og þungu áherslu á útgjaldahlið frumvarpsins. Hér er ekki mikið, alla vega enn sem komið er, rætt um tekjuhliðina t.d. og ég verð að viðurkenna að ég hef töluverðar áhyggjur af henni, því að auðvitað er tekjuhliðin lykillinn að því hversu langt er hægt að fara við útgjöldin.
Mig langaði til að spyrja hv. þingmann vegna orða hans um báknið: Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég hlustaði á ræðuna að Viðreisn lagði fram fyrirspurn um nefndir sem urðu til á kjörtímabilinu. Þá kom í ljós að frá nóvember 2017, þegar þessi ríkisstjórn eða sú síðasta var stofnuð, og fram til mars 2020 voru stofnaðar 248 nýjar nefndir til viðbótar við þær sem þá þegar voru starfandi. Það eru t.d. 37 í forsætisráðuneytinu einu og þær urðu væntanlega fleiri síðan og verða út þetta kjörtímabil. Ég ætla vitaskuld ekki að halda því fram að allt nefndastarf sé þarflaust, ég var nú að tala máli nefnda þingsins fyrr í dag. En ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið hv. þingmanns um þetta, hvort hann telji að þetta sé áhyggjuefni, hvort ráðherrar séu komnir fram úr sér í þessu nefndablæti, eins og ég vil leyfa mér að kalla það, af því að þegar maður skoðar stjórnarsáttmála nýrrar stjórnar má segja að það séu ansi sterkar vísbendingar um að það séu fleiri nefndir í smíðum.