152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:04]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er úr nokkuð vöndu að ráða, ég fylgdist ekki alveg með öllu sem hæstv. samgönguráðherra, innviðaráðherra, formaður Framsóknarflokksins, sagði í kosningabaráttunni. En meginspurningin er þessi: Báru ummæli tiltekinna ráðherra virðingu fyrir fjármálaáætluninni sem samþykkt var í vor? Ég ætla ekki að gerast dómari í þeim málum en það er alla vega það plagg sem þáverandi ríkisstjórn og þáverandi þingmeirihluti kom sér saman um og var leiðarljós okkar til lengri tíma. Það leiðir síðan aftur hugann að því, þegar við erum að ganga, í öllum flokkum, til kosningabaráttu, hvaða kröfur við gerum til umræðu í kosningabaráttu út frá ríkisfjármálunum og stefnu í efnahagsmálum. Það er aftur á móti áhugaverð umræða, sem ég held að sé ekki hægt að taka í andsvaratíma, hvort við ættum að gera eins og sumar þjóðir hafa gert sem hafa tekið upp sambærilega löggjöf og við höfum um opinber fjármál, að þær þurfi á einhvern hátt að meta kosningastefnuskrá sína út frá gildum sjálfbærni og stöðugleika.