fjárlög 2022.
Frú forseti. Hv. þm. Haraldur Benediktsson, þá verður fyrst öll gleðin tekin úr kosningabaráttunni, ef það þarf að fara að rýna slíkt í botn.
Ég þakka fyrir svarið. Nú var hv. þingmaður varaformaður fjárlaganefndar allt síðasta kjörtímabil og ef ég tók rétt eftir heldur hv. þingmaður því embætti áfram. Töluvert hefur verið rætt um samvinnuverkefni í samgöngumálum, PPP. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái þeim málum vinda fram núna. Hér voru samþykkt lög um samvinnuverkefni þar sem voru tilgreind sex verkefni sérstaklega á liðnu kjörtímabili, en enn bólar lítið á og kannski helst berast fréttir af vandræðum með útfærslu og að ýta málum áfram. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé eitthvað sem væri hægt að fá upplýsingar um frá fulltrúum meirihlutaflokkanna, (Forseti hringir.) því að þetta er mjög áhugavert upp á að leggja mat á hvernig framkvæmdastigi verður fyrir komið næstu árin.