152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:07]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Í tilefni af þessu seinna andsvari hv. þm. Bergþórs Ólasonar er það nákvæmlega verkefni allrar fjárlaganefndar að kalla eftir greinargerð í þá veru sem hv. þingmaður nefnir um samvinnuverkefni, hvar þau standi, hvernig fjármögnun þeirra sé og hver verði þá væntanlegur framkvæmdahraði og áhrif á fjárfestingarstigið í landinu. Það er örlítið gerð grein fyrir því í fjárlagafrumvarpinu hvaða áhrif þetta vigtar þar inn. En þetta er, virðulegur forseti, nákvæmlega eitt af þeim verkefnum sem hv. fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd verða að láta sig varða í þessum fjárlögum og síðan í fjármálaáætlun sem lögð verður fram að vori. Hvar standa þessi áform? Hvernig eru þau framboð? Hvernig miðar þeim áfram? Það er fyrir utan það að veita höfuðborgarsáttmálanum það aðhald sem þinginu er ætlað að veita í þeim efnum.