fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta hefur verið vitað í fjögur ár. Við vitum hvar meinið liggur. Það er í meingölluðu kerfi en við gerum ekkert í því, við tölum og tölum en gerum ekkert í því. Við erum líka að tala um kaupmátt. Nú þegar hefur launavísitalan hækkað um rúm 7% og kaupmáttur var sagður 2,9% en um síðustu áramót fengu eldri borgarar og öryrkjar 3,6% og verðbólgan er þegar komin af stað þannig að kaupmáttur hjá þessum einstaklingum er enginn, þau hafa engan kaupmátt fengið. Núna á að fara að setja 5,6% prósent. 1% var alveg rosalegt, því var lýst yfir hérna eins og það væri guðsgjöf. En eins og ég hef bent á: Meðan við setjum 1% inn í þetta kerfi erum við ekki að skila einu né neinu til þessa fólks, 2.500 kr. eða 1.500 kr. eftir skatta eða 0 kr. eftir skerðingar. Við eigum að hætta þessu.