fjárlög 2022.
Frú forseti. Getum við fullyrt sisvona eins og hv. þingmaður gerir í sínu seinna andsvari? Þurfum við ekki að komast aðeins nær kjarnanum um þetta, hvað þetta eru margir einstaklingar? Vegna þess að allar þær aðgerðir sem gripið var til á síðasta kjörtímabili, m.a. með aðgerðum hv. fjárlaganefndar og breytingartillögum við fjárlagafrumvörp sem flutt voru hér fyrr á árum, sem horfðu líka til þess hóps sem hv. þingmaður nefnir, veit ég að hafa skilað betri stöðu. Hvenær er staðan góð? Hvenær er hún orðin ásættanleg? Ég ætla ekki að gerast dómari í því en við þurfum miklu frekar að ná betur utan um hvaða verkefni þetta er. Ég er ekki að segja að verkefnið sé ekki til eða staða þessa fólks sé ekki til. En við getum ekki alveg sagt sem svo að þetta sé allt ónýtt og þetta sé allt ómögulegt, vegna þess að við höfum náð ákveðnum áföngum, hv. þingmaður. Það vil ég fullyrða.