fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Einkageirinn bjó til viðspyrnuna, sagði hv. þm. Haraldur Benediktsson í ræðu sinni hér og er örlítið sannleikskorn í því. En einkageirinn þurfti, til að búa til viðspyrnuna, gríðarlegan stuðning frá hinu opinbera, stuðning frá almenningi í formi skattgreiðslna í okkar sameiginlegu sjóði sem er vel, mjög gott. Það er gott að við gátum það, til þess erum við t.d. að greiða okkar skatta, til að við getum gripið og bjargað þeim sem þurfa á því að halda, hvort sem um er að ræða einkageirann eða fólk. (Forseti hringir.) En veikleikinn í orðum hv. þingmanns er kannski þetta: Að halda að það sé einhver einn sem geti gert þetta, að einkageirinn einn geti búið til viðspyrnu. Getur verið að það verði að vera þetta trausta samspil milli einkageirans og opinbera geirans?