fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Í aðdraganda síðustu kosninga voru ráðherrar þessarar ríkisstjórnar á harðahlaupum undan sinni eigin fjármálaáætlun. Ég upplifði það, í tveimur stórum þáttum á vegum Ríkisútvarpsins, að þeir gáfu lítið fyrir innihald fjármálaáætlunar, sögðu raunar lítið sem ekkert að marka hana, þetta væri bara áætlun til næstu fimm ára og það væru að koma kosningar. Nú hlýddi ég með athygli á ræðu hv. þingmanns þar sem hann hrósaði happi yfir því að við hefðum þó þessa fjármálaáætlun til að byggja á og þessi fjárlög væru þannig séð ekkert öðruvísi en það sem þar var gert ráð fyrir. Ég vil því spyrja út í tvennt sem m.a. formaður flokks hv. þingmanns afneitaði mjög skýrt í einum af kosningaþáttunum: Er enn þá planið að fara í afkomubætandi ráðstafanir, eins og það var orðað í fjármálaáætluninni, upp á 12–50 milljarða á ári á þessu kjörtímabili? Ég geymi síðari spurninguna fram í seinna andsvar.