fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Í fyrsta lagi var ég aðeins að draga það fram að í þessari fjárlagaumræðu værum við að styðjast við fyrsta ár fjármálaáætlunar sem við ræddum hér í vor. Hvað stjórnmálaleiðtogar hafa síðan sagt í kosningabaráttu endurspeglar ekki að þeir séu bundnir af þeirri þingsályktun enda nú komin ný ríkisstjórn og nýtt kjörtímabil og þau orð sem stjórnmálaforingjar létu falla í kosningabaráttu fyrir nokkrum dögum hljóta þá að birtast í endurskoðaðri fjármálaáætlun til næstu fimm ára þegar hún liggur fyrir. Áformin um aðhaldið, sem hv. þingmaður spyr einnig um, var ég að reyna að draga fram í ræðu minni áðan — vegna þess að efnahagslífið hefði vaxið hefði þörfin fyrir það aðhald sem við ræddum hér í vor minnkað, nánast horfið. Mér finnst það vera hin stóru tíðindi og það var það sem við sögðum í umræðum um fjármálaáætlun síðastliðið vor: Við ætlum að vaxa út úr þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir.