fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Það sem ég var einfaldlega að reyna að draga fram er að hæstv. ráðherrar vildu ekki kannast við þessa fjármálaáætlun fyrir kosningar en vísa nú í hana sér til hægðarauka eftir kosningar og virðast fullkomlega kannast við hana, að þetta hafi alltaf verið planið og sé áfram planið. Ég les það líka út úr þessu fjárlagafrumvarpi að áfram verði þörf á afkomubætandi ráðstöfunum, a.m.k. kemur fram á bls. 90 í frumvarpinu að það sé skynsamlegt að draga úr halla ríkissjóðs ár frá ári og stöðva með því hækkun hlutfalls skulda af landsframleiðslu á næstu árum. Þetta hlýtur að vera hluti af þessum afkomubætandi ráðstöfunum sem ráðherrarnir könnuðust ekkert við fyrir kosningar og fannst raunar mesta hneisa að ég skyldi dirfast að minnast á þær enda væri þessi fjármálaáætlun algerlega á útleið. En annað í þeirri áætlun sem ég benti ríkulega á var að það stæði til að draga saman þegar kæmi að útgjöldum til baráttunnar við loftslagsvána. Ég spyr hv. þingmann: Stendur enn þá til að um mitt kjörtímabil verði framlög til þess mikilvæga málaflokks minnkuð?